Landhelgisgæslan fór tvívegis um borð í hvalveiðibát í síðustu viku, auk þess sem lögreglan fór um borð í einn þegar hann lagðist að bryggju, vegna gruns um ólöglegar farþegasiglingar. Hvalaskoðunarfélagið hefur áhyggjur af þessari þróun.
„Við fengum ábendingu á föstudaginn var um að það væru farþegar að fara um borð í hvalveiðibátinn Hrafnreyði í Hafnarfjarðarhöfn og ég þóttist vita að þeir væru án farþegaleyfis þannig að ég lét Landhelgisgæsluna vita,“ segir María Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Hvalaskoðunarfélagi Íslands, sem hefur áhyggjur af því að hvalveiðimenn séu farnir að stunda hvalveiðiskoðunarferðir með erlenda ferðamenn. Hún segist hafa fylgst með ferðum bátsins í gegnum Marine Traffic og ferðin hafi tekið rúma tólf tíma.
„Þegar báturinn lagðist að bryggju í Hafnarfirði var komið myrkur en ég sá að lögreglan fór um borð og tók niður nöfn áhafnarmeðlima og farþega,“ segir hún, en segist ekki vita hvert framhaldið verði. „Við hjá Hvalaskoðunarfélaginu viljum auðvitað miklu frekar að hvalveiðibátarnir séu notaðir í skemmtiferðir en að vera að skjóta hvali, en þetta er spurning um að hafa tilskilin leyfi til farþegaflutninga, sem ég held að þeir hafi ekki.“
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, staðfestir að lögreglan hafi farið um borð í hvalveiðibát í Hafnarfjarðarhöfn á föstudagskvöldið var, auk þess sem starfsmenn Gæslunnar hafi tvívegis farið um borð í slíka báta við Suðvesturland í síðustu viku vegna gruns um farþegasiglingar. „Ég get staðfest að í öllum tilfellum voru nokkrir farþegar um borð sem ekki voru hluti af áhöfninni,“ segir hann. „Við erum svo að skoða hvort ástæða sé til einhverra aðgerða í framhaldinu. Það er dálítið opið hvað eru farþegasiglingar. Ef þú átt strandveiðibát, tíu metra langan, og þig langar til að skjótast hérna út á Sundin með afabörnin þín, er það bannað? Þetta er dálítið grátt svæði. Í þessu tilfelli sem við erum að tala um vitum við ekki hvort hvalveiðifyrirtækið var með starfsmenn fyrirtækisins í skemmtiferð, eða hvort eitthvað ólöglegt var í gangi. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hjá Landhelgisgæslunni hvort ástæða sé til að gefa út einhvers konar kæru. Það er verið að skoða það.“
Fyrir nokkrum árum kynntu hrefnuveiðimenn hugmynd um hvalveiðiskoðun, þar sem farþegum gæfist kostur á að taka þátt í að skjóta hrefnur, en hljótt hefur verið um þá hugmynd síðan. María Björk segist efast um að nokkurt dýr hafi verið skotið í ferðinni á föstudaginn, enda brjóti það í bága við dýraverndunarlög að gera aflífun dýra að skemmtiatriði. „En þetta atvik bendir til þess að hrefnuveiðar standi ekki undir sér og að hrefnuveiðimenn þurfi að reyna fyrir sér í ferðaþjónustu til að ná endum saman.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná í útgerðarmann Hrafnreyðar, Gunnar Bergmann Jónsson, við vinnslu fréttarinnar.
The post Dálítið opið hvað eru farþegasiglingar appeared first on Fréttatíminn.