Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók á miðvikudaginn fyrstu skóflustunguna að nýjum Dalskóla ásamt skólabörnum úr Dalskóla og íbúum í Úlfarsárdal. Markar skóflustungan upphafið að umfangsmestu framkvæmdum Reykjavíkurborgar næstu árin. Skóflustungan markar einnig upphaf framkvæmda við menningarmiðstöð, almenningsbókasafn, sundlaug og íþróttamiðstöð, sem nýtast mun íbúum í Grafarholti og Úlfarsárdal. Heildarflatarmál mannvirkjanna verður um 15.500 fermetrar. Íþróttavellir eru þegar tilbúnir á flötunum við Úlfarsá og einnig hefur verið gerð búningsaðstaða til bráðabirgða, en íþróttafélagið Fram er með starfsemi í dalnum. Heildarkostnaður við allar nýbyggingar Reykjavíkurborgar í Úlfarsárdal er áætlaður um 10 milljarðar.


The post Nýr Dalskóli í Úlfarsárdal appeared first on Fréttatíminn.