Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Gettu betur og Útsvarið í eina sæng

$
0
0

RÚV mun í lok mánaðarins sýna spurningaþátt þar sem sigurliðunum úr Útsvari og Gettu betur verður att saman í einhverskonar blöndu af báðum þáttum. Sigurlið Menntaskólans í Reykjavík úr Gettu betur mun þá mæta sigurliði Reykjavíkur sem hefur unnið Útvarið undanfarin tvö ár.

Björn Bragi Arnarsson.

Björn Bragi Arnarsson.

Þátturinn verður í umsjá þeirra Björns Braga Arnarssonar og Þóru Arnórsdóttur sem hlakka til. „Ég veit voðalega lítið um þetta ennþá en ég er sannfærð um að þetta verður mjög skemmtilegt, engin hætta á öðru,“ segir Þóra.

Gettu betur lið MR mun þurfa að fara í leikþrautina á meðan Útsvarslið Reykjavíkur mun þurfa að svara hraðaspurningum. Þannig munu þættirnir blandast saman meðal annars. Stefán Pálsson mun semja spurningarnar og Sveinn Guðmarsson verður dómari. Þátturinn er fyrirhugaður á dagskrá RÚV 26. júní næstkomandi og er aðeins einn þáttur fyrirhugaður.

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, segir að þessi hugmynd hafi komið upp í vor. „Við ákváðum bara að kýla á þetta enda er sumarið tíminn til að slá hlutunum upp í lauflétt grín og hæfilegt kæruleysi. Eins og stemmningin í þættinum verður… þótt liðin séu vissulega skipuð brjáluðu keppnisfólki sem efalaust mun leggja allt í sölurnar.“

The post Gettu betur og Útsvarið í eina sæng appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652