Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hvað er krabbamein?

$
0
0

Krabbamein…

 

…er samheiti yfir marga sjúkdóma.

…eru sjúkdómar sem einkennast af stjórnlausum og skaðlegum vexti frumna.

…eru frumur sem hafa glatað þeim eðlilega eiginleika að vinna sitt verk af hendi og deyja síðan. Krabbameinsfrumur halda því áfram að skipta sér og fjölgar stjórnlaust. Þær hætta að virða eðlileg landamæri líkamans og vaxa inn í aðra vefi. Þær geta því bæði skaðað það upphaflega líffæri sem þær uxu í, sem og önnur líffæri sem þær sá sér til.

…er kennt við það líffæri sem það verður til í. Brjóstakrabbamein verður til í brjóstum og lungnakrabbamein í lungum. Báðar þessar tegundir hafa tilhneigingu til að sá sér til lifrar og er þá talað um meinvörp í lifur frá annaðhvort brjósta- eða lungnakrabbameini.

…hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og eru vel þekkt í dýrum. Nú er svo komið á Vesturlöndum að um einn af hverjum þremur einstaklingum greinist með krabbamein einhvern tímann á ævi sinni. Framfarir í læknisfræði hafa nú orðið til þess að um helmingur þessara sjúklinga læknast. Margir læra að lifa með krabbameini eins og hverjum öðrum langvarandi sjúkdómi, s.s. sykursýki eða hjartabilun þótt þeir læknist ekki.

…. eru læknanleg að vissu leyti. Víða um heim er unnið ötullega að þróun nýrra aðferða í baráttunni við krabbamein. Hundruð nýrra efnasambanda sem unnin hafa verið úr náttúrunni eða smíðuð á rannsóknastofum munu á næstu árum verða reynd á mönnum. Áður þurfa þessi efni að sanna sig á krabbameinsfrumum á rannsóknastofum og í meðferð krabbameina í dýrum. Ljóst er að sum þessara nýju lyfja munu ekki gagnast mönnum, t.d. vegna ófyrirsjáanlegra aukaverkana. Hitt er jafnvíst að á meðal þeirra leynast krabbameinslyf framtíðarinnar sem munu gera meðferð krabbameina enn árangursríkari en hún er í dag.

Heimild: doktor.is

The post Hvað er krabbamein? appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652