Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Í Hollywood á gulum blæjubíl

$
0
0

Atli Óskar Fjalarsson leikur aðalhlutverkið í Þröstum, nýrri íslenskri kvikmynd í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar sem frumsýnd var hér á landi í vikunni. Atli er 23 ára og er í námi í leiklist í Los Angeles. Hann er nýkominn heim frá Spáni þar sem hann var viðstaddur frumsýningu myndarinnar á San Sebastian kvikmyndahátíðinni, þar sem honum var tekið eins og Hollywoodstjörnu. Hann er þó alltaf stressaðari að sýna leik sinn fyrir vini og ættingja á Íslandi.

„Ég flutti til Los Angeles í lok ágúst á síðasta ári og ég hélt að ég mundi vera alger kettlingur að koma heim í íslenska haustloftið, en svo er bara búið að vera fínt veður,“ segir leiklistarneminn Atli Óskar Fjalarsson. „Að vísu fannst mér ógeðslega kalt í morgun,“ segir hann.
„Ég var með Bandaríkin eða Bretland í huga þegar ég var að leita að skóla til þess að fara í. Svo útilokaði ég Bretland og skoðaði bæði New York og L.A, og komst svo inn í skóla þar og þá var það ákveðið,“ segir Atli sem er í New York Film Academy í Los Angeles. „Ég á að vera í skólanum núna,“ segir hann. „Sem betur fer var annar-pása í síðustu viku svo ég gat farið til Spánar en ég fer svo aftur vestur eftir frumsýninguna hér.“

„Auðvitað er það ekkert algengt á Íslandi að einhver 18 ára gaur flytji að heiman og alls ekki að tvítugur gaur kaupi sér íbúð, en ég hef alltaf tekið mínar ákvarðanir og þær voru bara mjög þroskandi.“

Var athyglissjúkt barn

Að hefja nám í Bandaríkjunum er flókið ferli og kostnaðarsamt en Atli segir þetta allt ganga upp. Hann segir að hlutverkið í Þröstum hafi hjálpað sér mikið. „Ég var svo heppinn að ég var nýbúinn í tökunum á Þröstum þegar ég fór út, svo ég var með smá sjóð,“ segir hann. „Svo er ég bara á framfærslu hjá LÍN, eins og aðrir íslenskir námsmenn. Það er æðislegt að vera þarna og þetta er geggjuð borg. Alltaf sól og ég keyri um á gulum blæjubíl,“ segir hann. „Gömlum Ford Mustang, sem er mjög gaman.“
Atli lék í sjónvarpsþáttunum Pressa þar sem hann vakti mikla athygli í hlutverki mjög vafasams einstaklings, en fólk tók fyrst eftir honum þegar hann lék aðeins 17 ára gamall í kvikmyndinni Órói sem var í leikstjórn Baldvins Z. Hann segist hafa ákveðið það snemma að reyna fyrir sér í leiklist. „Ég hafði alltaf mikla þörf fyrir að tjá mig og vera með eitthvert „show“,“ segir hann. „Ég var bara athyglissjúkur, upp að vissu marki. Ég var samt aldrei á því beint að ég ætlaði að vera leikari. Þrjóskaðist svolítið með það þangað til ég lék í Óróa,“ segir hann. „Þá fann ég að þetta var eitthvað sem mig langaði að gera. Þá var ekki aftur snúið. Það komu alltaf einhver smá verkefni á meðan ég var í menntaskólanum og þess á milli vann ég sem þjónn og barþjónn, eins og leikarar gera,“ segir Atli kíminn.

Icelandic actor Atli Oskar Fjalarsson (R) poses for a selfie with fans as he arrives for a photocall to promote his last film "Sparrows" during the 63rd San Sebastian Film Festival, in the northern Spanish Basque city of San Sebastian on September 20, 2015. AFP PHOTO/ ANDER GILLENEA
Atli Óskar var vinsæll á San Sebastian kvikmyndahátíðinni. Ljósmynd/Getty/NordicPhotos

Flutti að heiman 18 ára

„Ég reyndi aldrei við leiklistarskólann hér heima, og langaði aldrei að fara í hann,“ segir Atli. „Eingöngu vegna þess að mig langaði alltaf að fara af landinu,“ segir hann. „Ég er mjög ævintýragjarn og langar alltaf að prófa eitthvað nýtt og sjá eitthvað nýtt. Það er æðislegt að gera það í borg eins og Los Angeles. Það er hægt að fara svo víða og sjá svo margt. Ótrúlega fallegt svæði og mikið um að vera. Stöðug örvun fyrir mann,“ segir Atli sem hefur alltaf farið sínar eigin leiðir, sem lýsir sér best í því að hann flutti að heiman þegar hann var í menntaskóla. „Ég flutti að heiman þegar ég var 18 ára. Ég var eiginlega hættur í menntaskóla og var bara að vinna og var voðalega sjálfstæður. Ég veit ekkert alveg af hverju ég gerði það,“ segir hann. „Það var ekkert að heima hjá mér eða slíkt. Bara einhver sjálfstæðissprengja í mér.
Ég og mamma keyptum saman íbúð í Hlíðunum sem ég flutti inn í, og seinna fluttu vinir mínir inn til mín og leigðu hjá mér,“ segir hann. „Ég bjó þar í tvö ár og þá seldum við íbúðina og ég keypti mér sjálfur mína eigin íbúð í Breiðholtinu. Ég flutti þangað og bjó þar í tvö ár, áfram með vinum mínum og núna leigi ég hana út. Sem hjálpar mér mjög mikið í mínu námi úti,“ segir Atli. „Það borgar eiginlega fyrir leiguna mína úti. Auðvitað er það ekkert algengt á Íslandi að einhver 18 ára gaur flytji að heiman, og alls ekki að tvítugur gaur kaupi sér íbúð, en ég hef alltaf tekið mínar ákvarðanir og þær voru bara mjög þroskandi,“ segir hann. „Ég hefði ekki viljað gera þetta neitt öðruvísi.“

„Það er alltaf skemmtilegra að sýna sínum nánustu það sem maður hefur verið að gera. Um leið líka smá stressandi, en aðallega skemmtilegt,“

Einangrunin hélt manni við efnið

Kvikmyndin Þrestir fjallar um Ara, 16 ára pilt, sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að dvelja hjá föður sínum um tíma. Samband hans við föður sinn er erfitt og margt hefur breyst í plássinu þar sem hann ólst upp. Atli leikur aðalhlutverkið og segir að Rúnar Rúnarsson leikstjóri hafi ekki verið viss um að hann gæti litið út fyrir að vera 16 ára gamall.
„Við skutum hana í fyrrasumar og ferlið var allt mjög skemmtilegt,“ segir Atli. „Ég hef þekkt Rúnar síðan ég lék í stuttmyndinni hans, Smáfuglar, þegar ég var 14 ára gamall. Hann vildi fá mig á fund fyrir þetta hlutverk og var svolítið stressaður með útlitið því ég var með sítt hár og kominn með smá skegg og þurfti að leika 16 ára dreng,“ segir Atli. „Hann bað mig samt um að klippa mig og raka mig og mæta, sem ég og gerði. Hann andaði þá léttar því ég leit út fyrir að vera 16. Ég klæddi mig meira að segja í dúnúlpu sem ég var alltaf í á þeim aldri, sem endaði svo sem úlpan hans Ara í myndinni,“ segir hann.
„Það var alger snilld að taka myndina á Vestfjörðum. Það hélt manni mjög við efnið og ekkert sem truflaði mann. Við vorum einangruð frá öllu borgarlífinu, vinum og fjölskyldu. Það er mikið um einangrun og einmanaleika í myndinni og það að vera langt í burtu frá öllu hjálpaði mikið í allri vinnslunni. Ég er mjög sáttur við útkomuna og er mjög spenntur fyrir frumsýningunni hér heima. Það er alltaf skemmtilegra að sýna sínum nánustu það sem maður hefur verið að gera. Um leið líka smá stressandi, en aðallega skemmtilegt,“ segir hann.
„Ég er svo að fara til Þýskalands í nóvember að kynna myndina, sem er skemmtilegt. Hún fer mjög víða en ég veit ekki hvort ég geti farið á marga staði, vegna skólans. Það var mikið ævintýri að frumsýna á Spáni og viðtökurnar voru frábærar. Það var svo vel séð um okkur og ég var meðhöndlaður sem einhver prins.“

23137-blæjubíll-atli

Býr með besta vini sínum

Atli er í leiklistarnámi í skóla sem leggur áherslur á kvikmyndagerð og kvikmyndaleik. Hann segir kvikmyndagerðina mjög spennandi og finnst allar hliðar hennar vekja mikinn áhuga hjá sér.
„Ég hef alltaf verið heillaður af því sem gerist hinumegin við myndavélina. Sérstaklega eftir að ég var í Óróa, þá kviknaði þessi áhugi mjög mikið. Ég var alltaf spyrja út í allt og það hjálpaði mér mjög mikið að skilja þetta allt saman. Svo vann ég sem svona hlaupari við tökurnar á Interstellar sem var tekin hér á landi og þetta heillar allt saman. Kvikmyndaframleiðsla er heillandi,“ segir Atli sem býr með besta vini sínum í Los Angeles.
„Ég bý úti með vini mínum sem heitir Elías Kofoed-Hansen og hann er að læra handritaskrif í sama skóla og ég,“ segir Atli. „Við kynntumst þegar við lékum báðir í Óróa, en hann lék einmitt besta vin minn í þeirri mynd,“ segir hann. „Það er mjög þægilegt að hafa vin sinn með sér á nýjum stað.
Ég er búinn með eitt ár og á tvö ár eftir. Eftir það fæ ég atvinnuleyfi í eitt ár til þess að reyna fyrir mér og mun nýta mér það. Annars er eitthvað fram undan hér heima líka, en ekkert sem ég get talað um eins og staðan er í dag,“ segir hann. „Ég er ekkert að spá í neitt annað eins og er, því þá þyrfti ég að taka frí úr skólanum. Það fer eftir því hvað býðst. Ég vil einbeita mér að náminu,“ segir Atli Óskar Fjalarsson.

The post Í Hollywood á gulum blæjubíl appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652