Ragnheiður Eyjólfsdóttir arkitekt hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin í ár fyrir bók sína, Skuggasaga – Arftakinn. Þetta var tilkynnt í Hagaskóla í morgun. Verðlaunabókin er gefin út í dag.

Arftakinn er fyrsta verk Ragnheiðar en innblástur sækir hún í norrænar sögur og evrópskar sagnir og ævintýri. Hún er þegar komin vel á veg með næstu sögu um Sögu og Baldur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Forlagsins.
Að mati dómnefndar er Arftakinn metnaðarfull og spennandi saga sem jafnast á við bestu furðusögur sem skrifaðar hafa verið á íslensku.

Svona er bókinni lýst í fréttatilkynningu: Enginn tekur eftir Sögu. Þannig hefur það alltaf verið. Hún sér líka hluti sem enginn annar sér en er löngu búin að læra að þegja yfir því. Eftir að húshjálpin í kjallaranum hverfur sporlaust og í hennar stað birtist skuggalegur óvættur fær Saga loks skýringu á því hvers vegna hún er öðruvísi en aðrir. En það er skýring sem erfitt er að horfast í augu við og um leið upphafið að ótrúlegu ævintýri.
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka var stofnaður 30. janúar 1985 í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar (1915–1999) og eru nú veitt í 29. sinn. Að sjóðnum standa fjölskylda Ármanns, bókaútgáfan Vaka-Helgafell, nú innan vébanda Forlagsins, IBBY á Íslandi og Barnavinafélagið Sumargjöf. Fulltrúar þessara aðila skipa dómnefnd sem velur úr handritum en einnig eru í henni hverju sinni tveir grunnskólanemar, fulltrúar lesenda. Að þessu sinni komu þeir úr Hagaskóla í Reykjavík og færir verðlaunasjóðurinn þeim og skólanum kærar þakkir fyrir dýrmæta aðstoð. Megintilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa fyrir börn og unglinga og stuðla þannig að auknu framboði úrvalslesefnis fyrir æsku landsins. Sjóðurinn efnir árlega til samkeppni um Íslensku barnabókaverðlaunin sem veitt eru fyrir það handrit sem dómnefnd þykir best hverju sinni.

The post Arkitekt hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin í ár appeared first on Fréttatíminn.