Sextíu söngvarar verða valdir til að taka þátt í íslenskri útgáfu sjónvarpsþáttarins The Voice sem sýndur verður á Skjá einum í haust. The Voice er einn vinsælasti þáttur í heimi með yfir 500 milljónir áhorfenda og íslenska útgáfan verður stærsta verkefni Skjásins frá upphafi.
„Við erum búin að vera eitt og hálft ár að undirbúa þetta verkefni og þátturinn fer í loftið í lok september,“ segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri á Skjáeinum.
Skjárinn hefur tryggt sér réttinn til að gera íslenska útgáfa af sjónvarpsþættinum The Voice sem er stærsti „format“-þáttur í heimi með yfir 500 milljónir áhorfenda á heimsvísu. Þátturinn hóf göngu sína í Hollandi árið 2010 en var fljótlega keyptur til NBC í Bandaríkunum. The Voice er sýndur í 120 löndum og Ísland verður 61. landið sem gerir sína eigin útgáfu af þættinum.
„Ólíkt öðrum svona þáttum þá eru keppendur valdir fyrirfram. Við þurfum að finna 60 frambærilega söngvara og við erum þegar búin að ná í tæplega helminginn af þeim,“ segir Pálmi þegar hann er spurður um undirbúninginn. Þátturinn verður eins og frumgerðin – fjórir dómarar munu sjá um að þjálfa söngvarana og keppa sín í milli.
Pálmi segir að nú sé leitað að rétta fólkinu til að setjast í dómarasætin en hver þeirra verður með einn aðstoðarmann. „Við byrjuðum á því að kaupa formatið og leyfðum okkur að leita að keppendum í leiðinni en nú tekur við að ráða dómarateymið. Við erum búin að setja niður einhver nöfn sem við höfum áhuga á,“ segir Pálmi.
The Voice fer eins og áður segir í loftið í lok september en úrslitin ráðast í desember. „Við klárum fyrir jól en eftir áramót tekur þriðja þáttaröðin af Biggest Loser við,“ segir Pálmi en augljóst má vera að Skjárinn ætlar sér stóra hluti á sjónvarpsmarkaði á næstu misserum. Auk þessara tveggja stóru format-þátta hefur stöðin tryggt sér sýningarrétt að EM í fótbolta sem haldin verður í Frakklandi næsta sumar.
Á næstunni á The Voice allan hug Pálma enda í mörg horn að líta: „Þetta er stærsta verkefni Skjásins frá upphafi,“ segir Pálmi en Saga Film mun sjá um framleiðsluna. Tekið er á móti ábendingum um vænlega þátttakendur í The Voice á netfangið thevoiceisland@sagafilm.is.
The post Íslensk útgáfa af The Voice í loftið í haust appeared first on FRÉTTATÍMINN.