WOW Cyclothon hófst síðastliðinn þriðjudag og hafa yfir 1000 hjólreiðamenn nú lokið við að hjóla hringinn í kringum Ísland með boðsveitarformi. Sjö einstaklingar stefndu á að hjóla hringinn einir síns liðs og tókst fimm að ljúka keppni. Fréttatíminn fylgdist með einu 10 manna liði allan hringinn.
Liðið nefnist Landspítalateymið og er skipað starfsmönnum frá einum stærsta og fjölmennasta vinnustað landsins. Hjólreiðamennirnir eru á aldrinum 19-55 ára og koma frá hinum ýmsu starfsstöðum og starfsstéttum spítalans, allt frá garðsláttumanni til hjartaskurðlæknis. Ásdís Guðjónsdóttir sjúkraþjálfari starfar við endurhæfingu aldraðra á Landakotsspítala og fékk þá hugmynd þegar hún fylgdist með keppninni í fyrra að gaman væri að mynda lið með fjölbreyttum hópi starfsfólks spítalans. Í fyrra var hjólað til styrktar tækjakaupum fyrir bæklunarskurðdeild Landspítalans og í ár er hjólað til styrktar uppbyggingar batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi. „Mér fannst því viðeigandi að setja saman lið sem tengdist spítalanum, enda nóg af hjólreiðafólki sem starfar þar,“ segir Ásdís.
Vaktavinnan kom í veg fyrir sameiginlegar æfingar
„Ég fór af stað og náði í lykilmanneskjur sem þekkja vel til og svo fjölgaði bara stanslaust í hópnum. Hópurinn er fjölbreyttur sem gerir það þó að verkum að það hefur kannski ekki gengið alveg nógu vel að æfa öll saman. Vaktavinnan spilar þar inn í, auk þess sem einn meðlimur starfar erlendis,“ segir Ásdís. Hver liðsmaður hefur sína sérþekkingu, sumir hafa reynslu af björgunarsveitastörfum, aðrir hafa keppt í hjólreiðum, einn meðlimur hefur keppt í þríþraut og sjálf undirbjó Ásdís sig með því að bregða sér á æfingar með slökkviliðsmönnum. „Við eigum það að minnsta kosti sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á hjólreiðum og nú er stefnan tekin á að virkja áhugann í þágu góðs málefnis og hjóla til styrktar batamiðstöðvar Landspítalans,“ segir Ásdís. Þegar blaðamaður hafði samband rétt áður en lagt var í hann var hópurinn nýbúinn að uppgötva að einungis fjórir meðlimir teymisins væru með tilskilin leyfi til að aka bílunum tveimur sem fylgja liðinu. „Það kom í ljós að það mega ekki allir keyra svona stóran bíl,“ segir Ásdís og hlær. Það mun hins vegar ekki koma að sök. „Við erum með verkfræðing á okkar snærum sem sér um alla skipulagninu og leiðarlýsingu.“
Verður gott að komast í sturtu
Blaðamaður heyrði aftur í Ásdísi þegar stutt var eftir og teymið farið að nálgast Hvolsvöll. „Þetta er búið að ganga alveg rosalega vel, við erum búin að fá frábært veður og landið hefur skartað sínu fegursta.“ Aðspurð um hvað hafi komið mest á óvart segir Ásdís að keppnin hafi gengið mun hraðar fyrir sig en þau bjuggust við. „Við áætluðum að ljúka keppni um kvöldmat á fimmtudag en við verðum líklega komin í mark upp úr hádegi.“ Ásdís segir að gleðin sé allsráðandi í hópnum þrátt fyrir svefnleysi. „Við höfum tekið mjög stutta dúra svo sumir eru orðnir svolítið „tense“ en glaðir samt sem áður. Mesta tilhlökkunarefnið eftir að keppni lýkur er þó óneitanlega að komast í sturtu.“
Áheitasöfnunin hefur gengið vel og enn er hægt að leggja málefninu lið. „Við erum í kringum tíunda sætið núna og við hvetjum fólk til að styðja okkur og verkefnið áfram,“ segir Ásdís. Hægt verður að heita á liðin í einhvern tíma eftir að keppni lýkur. Heita má á Landspítalateymið, sem og önnur lið, á heimasíðu keppninnar.
The post Þverfaglegt teymi hjólar hringinn appeared first on FRÉTTATÍMINN.