Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þykir afskaplega vænt um Hólakirkju

$
0
0

Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og leikari hefur unnið við uppbyggingu fjölda kirkna vítt og breytt um landið á löngum ferli auk þess að hafa ritstýrt metnaðarfullri ritröð um allar friðaðar kirkjur á Íslandi. Elsta kirkja landsins, Hólakirkja, á þó sérstakan sess í hjarta hans og hefur hann nú gefið út sýna þriðju bók um Hólastað og byggingar hans, Hóladómkirkjur til forna. 

„Fyrstu bókina skrifaði ég með Kristjáni Eldjárn,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, sem hefur nú gefið út sína þriðju bók um kirkjustaðinn Hóla í Hjaltadal. „Sú bók var um Hóladómkirkju og kom til í framhaldi af vinnu minni við endurgerð kirkjunnar. Svo fékk ég það verkefni að endurgera Auðunarstofu sem var byggð árið 1316 á Hólum en var rifin snemma á 19. öld, sem varð svo aftur til þess að ég skrifaði bók um Auðunarstofu þegar hún var reist. Í öllum mínum pælingum um Hóladómkirkju í gegnum árin þá fannst mér vera til staðar þó nokkrar eyður í sambandi við eldri kirkjurnar sem þyrfti að fylla inn í. Svo árið 2013, í tilefni af 250 ára vígsluafmæli steinkirkjunnar, var ég beðinn, af Hólanefnd, að setja upp sýningu um kirkjustaðinn með honum Goddi. Út frá því kom upp sú hugmynd að gera eldri kirkjunum betri skil og ég hef unnið að þessu síðan.“

Bestu smiðir landsins byggðu kirkjurnar

Bókin varpar nýju ljósi á Jónskirkju, Péturskirkju og Halldórukirkju, allt viðarkirkjur sem stóðu á Hólum áður en steinkirkjan var byggð, og er hún full af myndum og teikningum sem margar hverjar eru nýjar og allar teiknaðar af Þorsteini. „Þegar steinkirkjan var reist kom hingað steinsmiður frá Danmörku sem reisti hana og skrifaði mjög nákvæmar skýrslur til stjórnarráðsins í Danmörku um alla vinnuna. Þær eru mjög athyglisverðar því hvergi hefur verið gerð jafn nákvæm vinnulýsing á verkstað á Norðurlöndum frá þessum tíma. En það voru íslenskir smiðir sem reistu timburkirkjurnar. Það var Jón Ögmundsson sem reisti fyrstu kirkjuna upp úr 1106 og þá fékk hann besta smið landsins til þess.“

Fyrsta kirkjan gæti verið að ítalskri fyrirmynd

En hvaðan kom fyrirmyndin að kirkjunum?
„Já, það er nú það. Hún Guðbjörg Kristjánsdóttir listfræðingur setti fram þá skemmtilegu tilgátu að hugsanlega hefði Jón Ögmundsson, þegar hann fór utan til Lundar árið 1106, fengið teikningu af Hóladómkirkju sem hann hugðist þá reisa. Þetta vor sem hann er þarna er hafin bygging á Lundardómkirkju, sem stendur þar enn, en við þá kirkju voru fengnir handverksmenn og arkitekt frá Norður-Ítalíu. Mér fannst þessi hugmynd svo heillandi að ég ákvað að láta eins og ég væri uppi árið 1106 og teiknaði upp kirkju eftir Jón Ögmundsson á þessum forsendum, sem er í bókinni. Auðvitað er þetta mín hugsmíð sem ég set fram í bókinni, en út frá hennar kenningum og líka út frá lýsingum af Jónskirkju úr Sturlungu og því sem Arngrímur lærði segir um stærð hennar.“

Hólakirkja í uppáhaldi

Áttu þér einhverja uppáhaldskirkju?
„Mér þykir orðið afskaplega vænt um Hólastað og Hóladómkirkja er mikil uppáhaldskirkja. Ég annaðist líka endurgerð Dómkirkjunnar í Reykjavík og þykir líka mjög vænt um hana, eins um Viðeyjarkirkju og Fríkirkjuna í Hafnarfirði sem ég hef líka komið að sem endurgerðararkitekt. Sem arkitekt og mikill áhugamaður um gömul hús fer ég inn í allar kirkjur sem ég keyri fram hjá. Ætli mín uppáhaldskirkja úti á landi sé ekki Knappstaðakirkja í Fljótunum, en ég kom að uppgerð hennar á sínum tíma. Hún er elsta timburkirkja á landinu, frá 1840.“

Í bókinni um Hólakirkjur til forna varpar Þorsteinn nýju ljósi á íslenskar miðaldadómkirkjur og fyllir í eyður í húsagerðarsögu landsmanna. Sagt er frá timburdómkirkjunum fjórum, sem stóðu á Hólum í Hjaltadal áður en núverandi steinkirkja var byggð 1757-1763, Jónskirkju, sem reist var upp úr 1106, Jörundarkirkju, reist um 1280, Péturskirkju 1395 og Halldórukirkju 1625-1627. Þorsteinn hefur auk þess ritstýrt safni um friðaðar kirkjur frá því hann var forstöðumaður Minjaverndar. Nýlega kom út 25. bindi ritraðar um friðaðar kirkjur hér á landi en að verkinu standa Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa.

The post Þykir afskaplega vænt um Hólakirkju appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652