Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut í vikunni Íslensku barnabókaverðlaunin 2015 fyrir sína fyrstu bók, Arftakinn. Ragnheiður er arkitekt, búsett í München í Þýskalandi, hefur verið sískrifandi frá barnæsku og hefur gríðarlegt dálæti á köttum, enda skírði hún son sinn Högna. Það versta sem hún veit er þegar einhver borðar frá henni uppáhalds sælgætið.
Ragnheiður ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og gekk hinn hefðbundna menntaveg Vesturbæinga; Vesturbæjarskóla, Hagaskóla og MR. Hún var rólegt og heimakært barn, sískrifandi og teiknandi og hafði mikið uppáhald á köttum, einkum teiknimyndakettinum Garfield, eða Gretti eins og hann heitir á íslensku. Hún á ekki langt að sækja skriftahæfileikann því afi hennar er rithöfundurinn Ingimar Erlendur Sigurðsson, bróðir Birgis Sigurðssonar leikskálds, og langamma hennar skrifaði einnig, þótt lítið hafi varðveist eftir hana.
Ragnheiður vissi fátt skemmtilegra sem barn en að segja sögur í veislum fjölskyldunnar og skrifaði þær síðan gjarna niður og myndskreytti. Hún var mjög heimakær dundari sem bjó sér til sinn eigin heim en það var ekki þar með sagt að hún tæki ekki þátt í félagslífi og skemmti sér með vinkonum sínum. „Hún var alltaf til í að stökkva til og bralla eitthvað, er spontant og alltaf til í eitthvað skemmtilegt,“ segir æskuvinkona hennar. „Hún á samt til að vera svakalega langrækin og hún þolir ekki ef einhver tekur uppáhalds nammið hennar og borðar það. Þá verður hún alveg óskaplega sár.“
Fleiri tiltaka það hvað Ragna, eins og Ragnheiður er alltaf kölluð, sé matsár og flestir taka líka fram að hún sé hörundsár, þver og dálítið stíf á því, en það tengist líka því hvað hún haldi fast utan um sitt einkalíf. „Ragna er dálítið prívat, svo það er mjög skemmtilegt að sjá hana koma fram með eitt stykki skáldsögu,“ segir vinur hennar en bætir við að hún sé leiftrandi skemmtileg með dálítið sérstæðan húmor. „Hún er yndislega kaldhæðin og stundum með skemmtilega óviðeigandi húmor,“ segir hann.
Eftir stúdentspróf frá MR fór Ragnheiður í Háskóla Íslands þar sem hún lærði þýsku í eina önn en listin kallaði á hana og hún innritaði sig í nám í arkitektúr í Listaháskólanum þaðan sem hún útskrifaðist árið 2008. Eftir það lá leiðin til Árósa þar sem hún lauk mastersgráðu í arkitektúr eftir að hafa verið í skiptinámi í München um hríð. München átti síðar eftir að verða heimili hennar þegar maður hennar, Sigurvin Friðbjarnarson, fór að vinna þar sem flugumferðarstjóri. Ragnheiður hefur verið sjálfstætt starfandi þar sem arkitekt síðan sonurinn Högni fæddist. Vinir og ættingjar leggja áherslu á að þau hjón séu höfðingjar heim að sækja og Ragna sé frábær kokkur.
Þótt Ragnheiður hafi verið hæglátt barn er hún ekki feimin og vinkonur hennar dást að því hvað hún sé klár og með allt á hreinu. „Ragna, í mínum augum, er þessi flotta, sjálfstæða, stríðna I-got-it-all týpa. Þess vegna finnst mér alltaf jafn fyndið hve illa hún tekur stríðni og mig undrar alltaf þegar hún segist hafa verið einfari sem barn og unglingur og hafi bara átt örfáa vini. Í barnaafmælum sat hún víst einsömul í einhverju horninu og las Andrésblöð,“ segir ein þeirra. „Þegar ég kynntist Rögnu gekk hún um í kápu sem var rauð og með hvítum kraga- alveg eins og jólasveinn, en hún er hörkutól og bráðgáfuð, hlý og mjög skemmtileg vinkona sem hefur áhuga á alls konar sem ég vissi ekki að væri til. Svo er hún skemmtilega skrítin á einstaklega afslappaðan hátt,“ segir önnur. „Svo er svo ágætt að Sigurvin, maðurinn hennar, er ljómandi skemmtilegur. Það er svo mikill bömmer þegar góðir vinir manns eru með leiðinlegum maka.“
Ragnheiður þykir efnilegur arkitekt og fyrrverandi yfirmaður segir hana einn flottasta arkitektatalent sem hann hefur lengi séð. Hún virðist einnig hafa náð góðum tökum á skriftunum en í umsögn dómnefndar Íslensku barnabókaverðlaunanna segir að Arftakinn sé metnaðarfull og spennandi saga sem jafnist á við bestu furðusögur sem skrifaðar hafa verið á íslensku. Hún er langt komin með bók númer tvö í flokknum, sem nefnist Skuggasaga, og telja má víst að íslenskir lesendur eigi eftir að kynnast verkum hennar mun betur í framtíðinni.
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Fædd: 26.02. 1984
Maki: Sigurvin Friðbjarnarson, flugumferðarstjóri í München
Sonur: Högni, 3ja ára
Foreldrar: Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastýra Hagþenkis, og Eyjólfur Eyjólfsson byggingafræðingur.
Skólaganga: Vesturbæjarskóli, Hagaskóli, MR, HÍ, Lhí, Arkitektskolen Århus, skiptinám í München.
The post Kaldhæðið hörkutól með óviðeigandi húmor appeared first on Fréttatíminn.