Ruby Rose hefur slegið eftirminnilega í gegn í hlutverki Stellu í þáttunum Orange is the new Black – OITNB. Hún birtist fyrst á skjánum í nýjustu þáttaröðinni, þeirri þriðju sem Netflix gefur út, en þættirnir fjalla um kvenfanga.
Ruby er 29 ára gömul og raunar alls ekki að hefja feril sinn þó hún sé nú fyrst orðin heimsþekkt. Hún er fædd og uppalin í Ástralíu þar sem hún hefur getið sér gott orð sem leikkona, sjónvarpskynnir og listamaður. Hún er samkynhneigð, kom út úr skápnum 12 ára gömul og segist í gegnum tíðina hafa mætt miklum skilningi á kynhneigð sinni. Hún er nú trúlofuð fatahönnuðinum Phoebe Dahl, barnabarni rithöfundarins Roald Dahl.

Þægindin voru í fyrirrúmi hjá Ruby þegar hún kom fram opinberlega í maímánuði og klæddist strigaskóm við leðurvesti og víðar buxur.
Ruby hefur ekki aðeins barist fyrir vitundarvakningu þegar kemur að samkynhneigð heldur talar hún opinskátt um að hún upplifi sig ekki endilega sem konu eða karl heldur upplifi hún það sem kallast „gender fluid“ eða breytilega kynímynd.
Útlit Ruby vekur athygli hvert sem hún fer, hún þykir æðifögur á strákslegan hátt og er jafnvel líkt við einskonar blöndu af Justin Bieber, Leonardo DiCaprio og Angelinu Jolie í útliti. Svo mikið er víst að hún á marga kvenkyns aðdáendur, sumar hverjar gagnkynhneigðar konur sem segjast hreinlega hafa farið að efast um kynhneigð sína eftir að þær komust í tæri við Ruby.
Á síðasta ári gaf hún út stuttmyndina „Break Free“ þar sem hún ögrar hefðbundnum kynímyndum og fer í tilfinningaþrungnu myndbandinu frá því að líta út eins og afar kvenleg fyrirsæta með sítt hár yfir í að líta út eins og tattúveraður stutthærður karlmaður.
Sjón er sögu ríkari en Ruby er sannarlega tískufyrirmynd sem tekið er eftir.

Ruby Rose er vel þekkt fyrir tattúin sín og hér er hún á forsíðu blaðsins Inked sem fjallar mikið til um húðflúr.
The post Ögrar hugmyndum um konur og karla appeared first on FRÉTTATÍMINN.