Fundu myndina í „reverse image search“ í Google.
Við vorum strax alveg vissar um að þessi mynd væri ekki ekta,“ segir Þórdís Gísladóttir, ein kvennanna sem heldur úti bloggsíðunni Druslubækur og doðrantar sem í gær birti færslu þar sem ætluð mynd af Evu Magnúsdóttur rithöfundi sem birtist í Fréttatímanum á föstudaginn var birt í upprunalegu samhengi á myndaveitunni Shutterstock. „Við settum myndina úr Fréttatímanum inn í leitarvél Google og fundum hana á Shutterstock.“
Spurð hvort þetta hafi verið hönnuð atburðarás af Forlagsins hálfu eða hvort einhver þeirra Druslubókadama viti hver hinn raunverulegi höfundur er harðneitar Þórdís því. „Við höfum ekki hugmynd, en ég hef heyrt ýmsar ágiskanir,“ segir hún. „Mín skoðun er sú að þetta sé annað hvort þekktur höfundur, til dæmis karl sem langar til að skrifa sem kona, eða þá einhver innanhússmanneskja hjá Forlaginu.“
The post Druslubókadömur gruna karlmann um að vera Eva appeared first on Fréttatíminn.