Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Nóbelssýning í Þjóðarbókhlöðunni

$
0
0

Sýning í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að Halldór Laxness hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels verður opnuð á morgun, þriðjudag, 27. október, klukkan 17. Sýningin er í samstarfi Gljúfrasteins – húss skáldsins, RÚV og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Á sýningunni gefur að líta margvísleg skjöl úr skjalasafni Halldórs Laxness sem varðveitt er í Þjóðarbókhlöðunni, muni frá Gljúfrasteini og Nóbelsverðlaunin sjálf sem eru í vörslu Seðlabanka Íslands. Þá hefur RÚV unnið sérstakan vef sem tileinkaður er Nóbelsverðlaunum Halldórs Laxness. Vefurinn verður aðgengilegur á snertiskjá á sýningunni. Sýningin stendur fram í mars 2016.

The post Nóbelssýning í Þjóðarbókhlöðunni appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652