Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

9 aðferðir til að draga úr streitu

$
0
0

 

  1. Líkamsrækt. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að líkamsrækt vinnur einna best gegn streitu. Á sama tíma hefur það sýnt sig að líkamsræktin er það fyrsta sem fólk frestar þegar það er undir álagi. Við áreynslu framleiðir líkaminn hormón sem vinna gegn streitu, og rannsóknir hafa sýnt að regluleg líkamsrækt mótar heilann þannig að hann er ónæmari fyrir streitu.
  2. Hugleiðsla.  Ein einfaldasta leiðin til að slaka á er að hugleiða. Rannsóknir hafa sýnt að hugleiðsla getur lækkað blóðþrýstingin, dregið úr neikvæðum tilfinningum og hjálpar fólki að slaka á. Nokkrar mínútur á dag af hugleiðslu geta gert gæfumuninn. 
  3. Kynlíf. Lægri blóðþrýstingur, framleiðsla á ástarhormóninu óxýtón, minni streita og almenn vellíðan eru meðal kosta þess að stunda kynlíf reglulega.
  4. Yndislestur. Að lesa sér til yndisauka í hálftíma í dag ætti að draga verulega úr streitu samkvæmt einni rannsókn sem unnin var við Háskólann í Sussex á Englandi. Mestu máli skiptir að lesa það sem veitir manni ánægju, það getur verið spennusaga, ævisaga eða matreiðslubók.
  5. Tónlist. Rannsóknir hafa sýnt að róleg tónlist getur hægt á hjartslættinum, lækkað blóðþrýstinginn og fækkað stresshormónum í líkamanum. Að hlusta daglega á tónlist er ein einfaldasta leiðin til að draga úr streitu. Mestu máli skiptir að velja tónlist sem hefur róandi og slakandi áhrif.
  6. Göngutúr. Góður göngutúr er ekki bara góð líkamsrækt, heldur frábær leið til að draga úr streitu. Ein rannsókn sýndi að minni og athyglisgáfa þeirra sem fóru reglulega í göngutúr jókst um 20 prósent.
  7. Félagsskapur. Tími með fjölskyldu og vinum byggir góða sjálfsmynd, veitir öryggistilfinningu og dregur úr streitu.
  8. Nudd. Fátt er jafn afslappandi og gott nudd. Rannsóknir hafa líka sýnt að nudd hefur góð áhrif á hjartað, lækkar blóðþrýstinginn og það fækkar stresshormónum.
  9. Áhugamál. Að sinna gefandi áhugamálum hefur svipuð áhrif og að lesa góða bók. Gott áhugamál gefur  tækifæri til að taka smá frí frá hversdagsamstri og slappa af. Áhugamálið getur verið að spila gólf, prjóna, teikna, syngja, dansa, leika á hljóðfæri, smíða eða elda mat, o.s.frv.

 

shutterstock_312675746

 

 

The post 9 aðferðir til að draga úr streitu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652