Söngvarinn og tónlistarmaðurinn Chris Cornell kemur fram í Eldborgarsal Hörpu miðvikudaginn 23. mars 2016.
Cornell hefur tónleikaferðalag um Evrópu í Hörpu, þar sem hann fylgir eftir tónleikaferðalagi sínu um gervöll Bandaríkin sem naut gríðarlegra vinsælda.
Um er að ræða órafmagnaða sólo tónleika og er óhætt að lofa ógleymanlegri kvöldstund. Cornell mun flytja vinsælustu lögin af öllum ferlinum í bland við ný lög af nýju plötunni, Higher Truth, sem tónlistartímaritið Metro sagði vera „nístandi áhrifaríka“ og Kerrang! Magazine fullyrti að væri „Besta platan sem Cornell hefur sent frá sér í 15 ár!“
Stöðug þróun Cornells sem lagahöfundar, textasmiðs og tónlistarmanns skín í gegn á Higher Truth, en upptökustjórinn var enginn annar en Brendan O’Brien (Bruce Springsteen, Pearl Jam, Neil Young). Á plötunni segir hann sögur af fólki, svo áhrifaríkar að þær þurrka út öll mörk á milli tónlistargreina. Innblásturinn sækir hann víða og gætir áhrifa í útsetningum til dæmis frá tónlistarmönnum á borð við Nick Drake, Daniel Johnston og Bítlunum á tímum Hvíta albúmsins –skapast þannig hljóðheimur sem er ólíkur öllum öðru.
Chris Cornell þarf vart að kynna; hann er einn af upphafsmönnum og hugmyndasmiðum grunge-hreyfingarinnar á tíunda áratugnum og það er óhætt að fullyrða að rödd hans sé ein sú þekktasta í rokksögunni. Hann hefur náð eyrum heimsbyggðarinnar með þremur ódauðlegum hljómsveitum, Soundgarden, Audioslave og Temple of the Dog, sem samtals hafa selt meira en 30 milljónir platna. Auk þess hefur hann unnið til fjölmargra Grammy verðlauna og verið tilnefndur til Golden Globe verðlauna sem söngvari, lagahöfundur, textsmiður og gítarleikari margoft síðustu þrjátíu ár.
Miðasala hefst fimmtudaginn 12. nóvember kl. 10 á Tix.is.
The post Chris Cornell í Hörpu í mars appeared first on Fréttatíminn.