
Hið þekkta David Bowie útlit.

Til að setja saman fuglahræðu þarf hatt, köflótta skyrtu, slitnar buxur og augnblýant.

Kisur eru vinsælar þetta árið á hrekkjavökunni, en það er einfalt að setja upp kattandlit með eyeliner að vopni.

Súpermann dulbýr sig sem Clark Kent.

Það þarf fátt annað en nokkar slæður og svart naglalakk til að breyta sér í spákonu.

Farðu í hvít föt og vefðu sárabindi og klósettpappír utan um þig til að breyta þér í múmíu. Notaðu tómatsósu eða rauðan matalit til að búa til blóðbletti.

Á degi hinna dauðu eða Día de Muertos í Mexíkó er hefð fyrir því að mála andlit sitt eins og beinagrind.
The post Hrekkjavökubúningar á síðustu stundu appeared first on Fréttatíminn.