Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Uppgerður bílskúr í Vesturbæ á 40 milljónir

$
0
0

Bílskúr í Vesturbæ Reykjavíkur, sem síðar varð atvinnuhúsnæði og hefur nú verið breytt í íbúðarhúsnæði, er til sölu á 39,9 milljónir. Gústaf Adolf Björnsson fasteignasali segir verðið fylgja markaðinum og töluverðan áhuga vera á eigninni, enda um sérbýli á vinsælasta stað borgarinnar að ræða. Hann segir markaðinn hrópa á minni eignir, unga fólkið í dag hafi ekki áhuga á því að reka stór hús.

„Það sem heillar við þetta húsnæði er að þetta er sérbýli á einum vinsælasta stað borgarinnar,“ segir Gústaf Adolf Björnsson, fasteignasali hjá Fasteignasölunni Fold, um uppgerðan bílskúr sem var á sínum tíma breytt í atvinnuhúsnæði en hefur nú verið breytt í íbúðarhúsnæði. Umrædd eign er við Víðimel og uppsett verð er 39,9 milljónir. Húsnæðið sjálft telur 92,1 fm en því fylgir bílskúr og herbergi í fjölbýlishúsinu sem bílskúrinn tilheyrði upphaflega. Samanlagður fermetrafjöldi er 139,2 sem þýðir að fermetrinn selst á 350.000 en það er meðalverð á fermetra í Vesturbænum. Fasteignamatið er 25.3 milljónir. Húsnæðið er skráð sem atvinnuhúsnæði en eigandi stefnir á að fá það flokkað sem vinnustofu.

Uppgerðar íbúðir alltaf dýrari

Húsnæðið var selt fyrir ári á 30 milljónir og hefur því hækkað um 10 milljónir á einu ári. Gústaf segir það vera vegna endurbótanna en auk þess fari verð almennt hækkandi. „Það ræðst auðvitað bara af viðbrögðum markaðarins hvort það verð sem upphaflega er sett á fasteign heldur sér. Tíminn mun leiða það í ljós hvert endanlegt söluverð verður. Fasteignaverð í Vesturbænum er hátt, það er auðvitað breytilegt eftir götum og íbúðum og eftir því hvort við erum að tala um íbúð frá byggingarárinu og sem er upprunaleg, eða hvort við erum að tala um íbúð sem hefur verið tekin alveg í gegn, eins og á við í þessu tilfelli, það er alltaf dýrara. Þetta húsnæði hefur verið tekið í gegn frá A til Ö, bæði lagnir, gluggar og innréttingar, þarna er allt glænýtt.“

Unga fólkið vill ekki stór hús

Gústaf segir ekki vera mikið framboð af eignum á þessu svæði og því fái nýjar eignir alltaf sterk viðbrögð. Nálægðin við þjónustu, vinnustaði og háskólasvæðið heilli sérstaklega. Hann segir að almennt sárvanti millistórar íbúðir á markaðinn, ekki bara í Vesturbæinn, og því sé slegist um þær. „Það er ákveðið ójafnvægi á markaðinum því fermetraverðið á minni íbúðum sem eru miðsvæðis er mun hærra en á stórum einbýlishúsum í úthverfunum. Fjögurra herbergja íbúðir eru að fara á um 40 milljónir en sérbýlin í úthverfunum eru að fara á rúmar 50 milljónir. Það er oft þannig að eldra fólk sem er á leið úr stórum sérbýlum og vill minnka við sig þar af borga með sér. Þá finnst manni oft vera vitlaust gefið. En unga fólkið í dag hefur ekki jafn mikinn áhuga á stórum eignum, það er dýrt að reka þær og ungu fólki hugnast það ekki eins og staðan er í dag. Markaðurinn kallar á minni eignir.“

Fermetraverð í fjölbýli:
Vesturbær innan Hringbrautar og Snorrabrautar 382.000
Melar og Hagar 351.000
Sjáland, Garðabæ 350.000
Hlíðar 315.000
Salir, Kópavogur 310.000
Mosfellsbær 284.000
Rimar 278.000
Grafarholt 276.000
Hraun, Hafnarfjörður 238.000
Seljahverfi 232.000

Fermetraverð í sérbýli:
Miðbær vestan Snorrabrautar 360.000
Seltjarnarnes 311.000
Reykjavík sunnan Miklubrautar (Seltjarnarnes að Reykjanesbraut) 295.000
Lindir, Smára og Salir, Kópavogur 288.000
Grafarholt 276.000
Miðbær norðan Snorrabrautar 259.000
Seljahverfi 232.000

The post Uppgerður bílskúr í Vesturbæ á 40 milljónir appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652