Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ég lifi bara fyrir daginn í dag

$
0
0

Kristján er sannfærður um að hann muni hafa betur í baráttunni, svo lengi sem hann taki bara einn dag fyrir í einu. Veikindin hafa þó haft mikil áhrif á fjölskylduna, bæði andlega þar sem æxlið hefur áhrif á persónuleika Kristjáns, og fjárhagslega. Um helgina stendur líkamsræktarstöðin Hress í Hafnarfirði fyrir góðgerðarleikum þar sem allur aðgangseyrir mun renna til Kristjáns og fjölskyldu.

Fyrsti sjúklingurinn sem gekk út af gjörgæslunni

Kristján fór í aðgerð fljótlega eftir greininguna í vor og hefur verið frá vinnu síðan. Læknarnir og hjúkrunarfræðingarnir munu líklega seint gleyma Kristjáni. Aðgerðin heppnaðist vel og var Kristján hinn hressasti þegar hann vaknaði, ef til vill of hress því hann gekk sjálfur út af gjörgæsludeildinni sólarhring síðar, nánast eins og ekkert hefði í skorist. „Þær á gjörgæslunni ætluðu að fara að stoppa mig enda höfðu þær aldrei séð mann labba út af deildinni. Ég var reyndar mjög valtur og ætlaði að taka rúmið með mér, enda fastur við það,“ segir hann og hlær.

Persónuleikabreytingarnar sem fylgja veikindum geta tekið á en Kristján tekur þeim af léttúð. „Ég hlæ bara að þessum breytingum og finnst Kristín taka þeim of alvarlega. En ég treysti mér samt sem áður ekki til að vera lengi einn heima með börnunum mínum, þó að ég vilji það. En ég veit að ég hef minni þolinmæði og get orðið skapstyggur og ég vil ekki að það bitni á þeim.“ Veikindin hafa einnig haft mikil áhrif á Kristínu, sem hefur glímt við svefnleysi, streitu og þunglyndi, en eftir því sem líður á hefur hún verið dugleg að nýta sér þá þjónustu sem Krabbameinsfélagið, Ljósið og Kraftur bjóða upp á. „Ég hef sagt við Kristínu að ég myndi aldrei höndla að vera í hennar stöðu, með deyjandi maka og þrjú börn. Mér finnst hún því óheppnari en ég, þannig lagað. En hún er algjör hetja,“ segir Kristján.

Hressleikarnir 2015: Góðgerðarleikar til styrktar Kristjáni og fjölskyldu

Hressleikarnir fara fram laugardaginn 31. október. Hressleikarnir eru góðgerðaleikar sem haldnir eru í HRESS í Hafnarfirði. Leikarnir hafa verið haldnir um árabil og er markmið þeirra að styrkja kroppinn og gott málefni um leið. Á leikunum eru 8, 28 manna lið sem öll klæðast sérstökum lit sem æfa í 15 mínútna lotum í tvo tíma. Aðgangur að leikunum er 2.500 krónur og rennur óskiptur Kristjáns og fjölskyldu. Skráning á leikanna fer fram í HRESS, Dalshrauni 11. Það eina sem þarf að gera til að taka þátt er að velja lit og greiða 2500 krónur. Allir eru velkomnir, hvort sem þeir eru korthafar í Hress eða ekki. Svitnum saman til góðs !

Ítarlegt viðtal við Kristján og Kristínu má finna í Fréttatímanum um helgina. 

The post Ég lifi bara fyrir daginn í dag appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652