Hundaveðhlaup hafa lengið verið stunduð á Írlandi og í hjarta Dublin er hægt að taka þátt í slíku hlaupi. WOW air er nýbyrjað að bjóða upp á beint flug til Dublin og af því tilefni fór hópur íslenskra blaðamanna út að kynna sér áfangastaðinn. Að ólöstuðum öllum fínu söfnunum, Guinness-verksmiðjunni og írsku sveitunum þá voru það hundaveðhlaupin sem stóðu upp úr.
Þau tímamót áttu sér stað í lífi mínu fyrir í þessum mánuði að ég veðjaði á hundaveðhlaupi, nánar tiltekið á hundaveðhlaupi í Dublin. Í fyrsta hlaupi á mínu fyrsta veðhlaupi ákvað ég að veðja einni evru á hundinn Riverside Jade. Starfsmaður Harold´s Cross Greyhound Statium sagði að alvanalegt væri að fólk veðjaði ekki nema einni til þremur evrum enda væri þetta fyrst og fremst skemmtun. Svo yfir hvítvínsglasi og andarsteik horfði ég á Riverside Jade hlaupa og hlaupa til sigurs. Upp úr krafsinu hafði ég rúmar þrjár evrur og veðjaði aftur einni evru í næsta hlaupi.
Það var þann 11. júní sem ég fór í blaðamannaferð á vegum flugfélagsins WOW air og ferðamálastofu Írlands, Tourism Ireland. Aðal leiðsögumaður okkar var Mark Quinn en honum er margt til lista lagt. Til að mynda er hann stórmeistari í skák og bað okkur að skila kveðju til eina Íslendingsins sem hann þekkir: Helga Áss Grétarssonar. Þeirri kveðju er hér með komið til skila. Mark var vel meðvitaður um smæð Íslands og var því ekki svo hissa þegar ég sagðist vera nýbúin að taka viðtal við mágkonu Helga fyrir Fréttatímann.
„Night at the Dogs“
WOW air er nýfarið að bjóða upp á flugferðir þrisvar í viku milli Dublin og Keflavíkur og sjá Írar sér ekki síður hag í því en Íslendingar, en viku áður hafði hópur írskra blaðamanna heimsótt Ísland og farið í skipulagða skoðunarferð í ætt við þá sem við íslensku blaðamennirnir fórum í.
Við vorum varla lent þegar leið okkar lá í verksmiðju Guinness, eins frægasta bjórs í heimi. Þar fengum við þjálfum í að hella Guinness í glas eins og fagmaður og gæddum okkur á nautagúllaskássu sem elduð var upp úr Guinness-bjór. Það var þetta sama kvöld sem við fórum á veðhlaupið, „A Night at the Dogs“.
Skipulagt hundaveðhlaup hefur lengi verið stundað á Írlandi. Fyrsti stóri verðhlaupahringurinn var opnaður í Belfast árið 1927 en Harold´s Cross opnaði síðar sama ár. Hundarnir sem keppa eru mjóhundar af tegundinni Greyhound en þeir eru ekki ræktaðir á Íslandi. Frá árinu 1958 hefur The Irish Greyhound Board verið starfrækt. Spurningar vöknuðu meðal okkar blaðamanna um velferð þeirra hunda sem keppa, við fengum að heyra að þeir keppa að jafnaði aðeins í eitt til tvö ár en verða síðan prýðisgóðir heimilishundar. Starfsmaður verðhlaupahringsins fræddi okkur til að mynda um að hann ætti sjálfur tvo Greyhounds sem hefðu áður verið keppnishundar. Í gegnum tíðina hefur verið algengt að bændur ali keppnishunda til að drýgja tekjur heimilisins.
Ungir sem aldnir
Það voru engar ýkjur þegar Mark sagði okkur að lítið væri um einsleitan hóp Íra á hvers konar viðburðum, og á hundaveðhlaupinu mátti sjá virðulegar eldri konur og fyrrverandi forsætisráðherra Írlands með þingflokksfélögum sínum. Ungir foreldrar með börnin sín gæddu sér á frönskum kartöflum og gosi á meðan heldra fólkið pantaði sér fínni mat á veitingastaðnum, mun fínni en ég hafði reiknað með á veðhlaupastað.

Á Harold´s Cross leikvanginum er hægt að borða inni og fylgjast með hvort sem er innan frá eða fara út.
Skemmst er frá því að segja að eftir að hafa veðjað í tveimur hlaupum var ég komin upp á lagið með þetta þó mér hafi í fyrstu fundist algjörlega óskiljanlegt hvernig bera ætti sig að. Þjónar áttu einfaldlega ákveðið svæði og gengu á milli borða þar sem þeir tóku á móti veðmálum, og gáfu kvittun á móti. Eftir hvert hlaup gengu þeir aftur á milli til að athuga hvort fólk hefði unnið og greiddu út vinninga. Við þurfum því ekki einu sinni að standa upp til að veðja.
Þrátt fyrir þau fínu söfn sem við heimsóttum í ferðinni, dásamlega gönguferð í sveitum Írlands, fallegasta herragarð Írlands sem raunar heitir einfaldlega The Garden of Ireland, tebollann sem við fengum í smábænum Hollywood (þeim upprunalega), hádegisverðinn sem við snæddum á uppáhaldsveitingastað Bono úr U2 – að ógleymdri verslanamiðstöðinni Dum Drum – þá voru það veðhlaupahundarnir sem stóðu upp úr þessari ferð og ég er mjög þakklát fyrir að skipuleggjendur hættu ekki við að hafa þá í dagskránni, eins og þeir raunar ætluðu, því þeir héldu að íslensku blaðamennirnir myndu ekki hafa neitt gaman af þeim.
The post Kvöldstund með veðhlaupahundum appeared first on FRÉTTATÍMINN.