Denise Margrét Yaghi er 23 ára Vesturbæingur sem stundar samkvæmisdans af miklum móð. Hún fæddist í Katar og á líbanskan föður og í sumar flýgur hún um allan heim sem flugfreyja hjá WOW Air.
Ég kláraði Versló fyrir þremur árum og er búin að vera að dansa og kenna dans síðan. Það eru mikil ferðalög sem fylgja dansinum og við förum mikið til Englands, bæði til að æfa hjá kennurum þar og að keppa á mótum. Mér finnst þetta rosa gaman og ætla að halda áfram að dansa þó þetta sé svolítið basl. Þetta er dýrt og við fáum því miður lítið af styrkjum.
Staðalbúnaður
Ég versla mest í H&M, Monki, Zöru og Urban, sem sagt mest í útlöndum. Ég legg ekki í vana minn að missa mig í búðum, ég vel frekar færri og vandaðri flíkur og á þær lengur í stað þess að kaupa þúsund vörur í hverri ferð. Mér finnst All Saints líka ótrúlega fín búð, hún er eiginlega uppáhalds búðin mín, en ég hef ekki alveg efni á að versla þar reglulega. Ég reyni að blanda saman þægilegum og fínum fötum – mér finnst gaman að vera smá fín en er ekkert alltaf á pinnahælum.
Hugbúnaður
Mér finnst rosa gaman að fara í sund. Vesturbæjarlaugin er í uppáhaldi en mér finnst líka gaman að prófa nýjar laugar, bæði úti á landi og í Reykjavík. Ég fer svolítið á kaffihús. Mér finnst gaman að fara í bókabúðirnar, Kaffi Vest er líka skemmtilegt og mér þykir alltaf vænt um Tíu dropa. Mér finnst alltaf æðislegt að fara þangað og tengi það einhvern veginn við jólin. Við stelpurnar erum byrjaðar að fara í göngutúra á kvöldin og það er mjög skemmtilegt. Mér finnst líka gaman að fara í leikhús og er ágætlega dugleg að gera það. Ég fer út að skemmta mér þó ég drekki ekki. Á b5 hitti ég Verslókrakkana og svo eru Vesturbæingarnir á Prikinu. Þetta er góð blanda og stutt á milli. Ég horfi ekki mikið á sjónvarpsþætti en get þó mælt með Black Mirror sem er klikkaður, breskur sálfræðitryllir. Frekar ógeðslegt stöff.
Vélbúnaður
Ég á iPhone 5 en ég er ekkert brjálæðislega mikið í símanum og er ekki með mörg öpp. Ég nota samt Facebook og finnst Instagram mjög skemmtilegt. Ég er ekki á Twitter, ég er ekki svo kúl, en það eru allir þar núna svo ég verð að fara að bæta úr því.
Aukabúnaður
Ég bý ennþá heima og er því það heppin að ég þarf ekki að elda. Uppáhaldsmaturinn minn er líbanskur og indverskur matur en annars finnst mér allt gott. Ég kaupi sjaldan skyndibita en nota frekar hádegistilboðin og fer út að borða, til dæmis á Ítalíu. Ég keyri um á Yaris sem ég er með í langtímaláni frá vinkonu sinni. Í sumar verður nóg að gera í vinnu en ég fer þó í æfingabúðir til Englands í ágúst. Ég var í Ástralíu allt síðasta sumar að dansa. Ég get óhikað sagt að það sé uppáhalds staðurinn minn og mig langar mikið að fara þangað aftur.
The post Hittir Verslókrakkana á b5 og Vesturbæingana á Prikinu appeared first on FRÉTTATÍMINN.