Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Íslendinga þyrstir í hönnunarþekkingu

$
0
0

Emilía Borgþórsdóttir starfaði í Bandaríkjunum við húsgagnahönnun og innanhússhönnun í nokkur ár en flutti heim til Íslands fyrir þremur árum. Emilía starfar nú sjálfstætt sem hönnuður við fjölbreytt verkefni hér á landi. „Þetta byrjaði þannig að ég flutti frá San Fransisco til Vestmannaeyja með fjölskylduna. Þar kynntist ég Valgerði hjá símenntunarmiðstöðinni í bænum og henni tókst að plata mig til að halda námskeið um heimili og hönnun í Eyjum. Það byrjaði með einu námskeiði en urðu svo fjögur,“ segir Emilía. Fjölskyldan flutti svo til Hafnarfjarðar í fyrra. „Þá frétti Endurmenntun Háskóla Íslands af námskeiðinu og úr var að ég kenndi sams konar námskeið í Reykjavík.“ Næsta námskeið fer fram í nóvember og er það sjöunda í röðinni. „Þetta átti bara að byrja með einu, en þetta er svið sem snertir flesta og ég finn að Íslendinga þyrstir í grunnþekkingu á því sem tengist heimili og hönnun,“ segir Emilía.

Námskeið fyrir áhugafólk um innanhússhönnun og heimili

Á námskeiðinu er farið í grunnatriði hönnunar innan heimilisins á einföldu máli, svo sem uppröðun húsgagna, lýsingu, hvernig hengja eigi upp myndir og litaskema og fleira sem þarf til að skapa góða stemningu á heimilinu. „Mörg íslensk heimili hafa einfaldar og stílhreinar innréttingar í minimalískum stíl og þá er gott að vita hvað þarf til að auka hlýleikann,“ segir Emilía. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja gera betur við hönnun á heimili sínu og þurfa þátttakendur ekki að búa yfir neinni grunnmenntun á sviði innanhússhönnunar, aðeins áhuga. „Ég fer í gegnum mikið af myndum sem ég hef valið og sýni svart á hvítu hvað virkar og hvað virkar ekki og ástæður þess. Þannig þjálfa ég augu þeirra sem sækja námskeiðið um hvernig hægt er að sjá hlutina fyrir sér.“

„Við erum að verða klassískari og fara eftir okkar eigin sannfæringu og karakter, í stað þess að elta ákveðin tískutrend.“

Fylgjum eigin sannfæringu í stað tískutrenda

Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að geta gert einfaldar breytingar heima við sem draga betur fram þann stíl sem hentar vel þeim munum og húsgögnum sem eru til á heimilinu. „Það er alls ekki nauðsynlegt að fara í dýrar framkvæmdir til að endurspegla vel persónulegan stíl,“ segir Emilía. Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda og uppselt er á næsta námskeið sem fram fer í nóvember. Ástæðuna fyrir vinsældunum segir Emilía tengjast auknum áhuga og sýnileika innanhússhönnunar. „Við viljum fá að læra af hverju hlutirnir virka eins og þeir virka. Við Íslendingar erum líka sem betur fer að hætta að fylgja einum ákveðnum tískustraumi. Við erum að verða klassískari og fara eftir okkar eigin sannfæringu og karakter, í stað þess að elta ákveðin tískutrend. Það þarf ekki alltaf að hlaupa út í búð, það er ástæða fyrir því að við eigum hlutina og ég legg áherslu á að fólk geti útfært heimilið eftir sínu höfði og með sínum stíl.“

Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður
Emilía Borgþórsdóttir iðnhönnuður kennir áhugafólki um heimili og hönnun réttu ráðin til að skapa góða heild, stemningu og hlýju á heimilinu. Mynd/Hari

Áhugi úr öllum áttum

„Konur eru í miklum meirihluta, en þær eru á öllum aldri,“ segir Emilía, aðspurð um hvað einkennir þá sem sækja námskeiðið. „Við erum einnig byrjuð með framhaldsnámskeið og á því er meðal annars maður sem kemur alla leið frá Eskifirði,“ segir Emilía. Hægt er að skrá sig á biðlista fyrir námskeiðið sem fram fer nú í nóvember hjá Endurmenntun en Emilía hvetur fólk til að fylgjast með eftir áramót. „Það stefnir allt í fleiri námskeið á nýju ári.“

 

 

The post Íslendinga þyrstir í hönnunarþekkingu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652