Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vefjagigt er ekki ruslakistugreining

$
0
0

Vefjagigt er flokkuð með gigtarsjúkdómum vegna þess að mörg einkenni sjúkdómsins eru nauðalík einkennum í öðrum gigtarsjúkdómum, svo sem stoðkerfisverkir og morgunstirðleiki. „Vefjagigt er fyrst og fremst starfræn truflun í verkjakerfi miðtaugakerfisins þannig að af hlýst svokölluð miðlæg verkjanæming,“ segir Sigrún. Miðlæg verkjanæming lýsir sér þannig að vægir verkir sem geta orðið til við líkamlegt álag eða áverka einkum á hálsi eða baki, magnast upp í verkjakerfi líkamans og skynjast mun sterkar en annars hefði orðið. „Oft byrja þessir verkir frekar staðbundið í líkamanum en breiðast síðan út og þegar verkirnir eru komnir vítt og breitt um líkamann er einstaklingurinn greindur með vefjagigt.“

Mikilvægt að greina vefjagigt snemma

Sigrún starfar hjá Þraut ehf. sem sérhæfir sig í hágæðaþjónustu fyrir fólk með vefjagigt og tengda sjúkdóma. „Vefjagigt sem einu sinni hefur tekist að festa rætur verður ekki læknuð, en góðu fréttirnar eru að það er hægt að ná verulegum bata í vefjagigt þó ekki fáist full lækning.“ Sigrún segir að við mat á vefjagigt sé mikilvægt að kortleggja vel einkennamynd sjúkdómsins og veita einstaklingnum fræðslu um sjúkdóminn og leiðir til bættrar heilsu.

„Vefjagigt sem einu sinni hefur tekist að festa rætur verður ekki læknuð.“

„Það sem gerir lyfjameðferð í vefjagigt erfiða er að lyfin virka misvel á einstaklinga, sumir verða aðeins betri af einkennum, aðrir finna engan mun og sumir jafnvel versna af einkennunum. Mikilvægt er að hver og einn öðlist þekkingu á eigin líkamsástandi og færni og geti þannig unnið að því að bæta heilsu sína á raunhæfan hátt og með réttar væntingar um útkomu í farteskinu.“ Það skiptir því sköpum í meðferð vefjagigtar að greina sjúkdóminn snemma, áður en vefjagigtin er komin á illvígt stig. „Fólk með vefjagigt hefur mun minni orku samanborið við heilbrigða einstaklinga, eru með minnkað þol fyrir öllu álagi og áreiti, eru oft með verulegar svefntruflanir og íþyngjandi heilaþoku og yfirleitt með nær stöðuga verki. Meðferðaráætlunin þarf að taka til allra þessara þátta.

Sigrún segir nauðsynlegt að fræða bæði sjúklinga og sérfræðinga um eðli, framgang og meðferð vefjagigtar til að eyða fordómum og auka skilning á sjúkdómnum. „Það er forsenda þess að góður meðferðarárangur náist.“

Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Eggert S. Birgisson sálfræðingur og Sigrún Baldursdóttur, sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur, eru stofnendur Þrautar, sem leitast eftir því að veita fólki með vefjagigt og tengda sjúkdóma hágæðaþjónustu í þeim tilgangi að auka lífsgæði þeirra og færni til daglegra athafna.
Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Eggert S. Birgisson sálfræðingur og Sigrún Baldursdóttur, sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur, eru stofnendur Þrautar, sem leitast eftir því að veita fólki með vefjagigt og tengda sjúkdóma hágæðaþjónustu í þeim tilgangi að auka lífsgæði þeirra og færni til daglegra athafna.

Lýsingar vefjagigtarsjúklinga á ástandi sínu:

„Stundum er svefntíminn eins og heill vinnudagur að líða.“
– 46 ára fullvinnandi fræðingur

„Lífið með vefjagigt krefst ákveðins lífsstíls og ég verð að lifa eftir sjúkdómnum, ef ég geri það ekki þá líður mér illa. Ég þekki ekkert annað í dag, veit ekki hvernig er að vera án verkja eða stífra vöðva. Þetta er eitthvað sem ég er orðin vön og búin að sætta mig við. Ég veit að það þýðir ekki að vera fúl og döpur yfir þessu, en stundum kemst ég bara ekki hjá því.“
– 21 árs stúdent á leið út í lífið

„Heilaþokan truflar mig einna mest, ég man ekki hurðanna á milli, finn ótrúlegustu hluti á ótrúlegustu stöðum, man ekki rétt orð, fylgi ekki samræðum og á erfitt með að horfa á bíómyndir eða lesa bækur. Heilinn á mér fúnkerar bara ekki.“
– 20 ára nemi og fyrrverandi dúx

„Heilinn á mér kann ekki að reikna út fjarlægðir, ég sé stól eða horn til hliðar við mig en samt rekst ég í það. Ég er alltaf að meiða mig, er ótrúlega klaufsk og alltaf með marbletti út um allt.“
– 13 ára vefjagigtarmær

Verkjakort einstaklings með vefjagigt.
Verkjakort einstaklings með vefjagigt.

 

The post Vefjagigt er ekki ruslakistugreining appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652