Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tvö á mótorhjólum í fimm í mánuði

$
0
0

Unnur Sveinsdóttir og Högni Páll Harðarson létu einn af draumum sínum rætast sumarið 2014 og fóru í fimm mánaða mótorhjólaferðalag um Mið-Asíu. Nú hafa þau gefið út bók um tiltækið og eru þegar farin að plana næstu ferð. Unnur segist hafa tekið mótorhjólaprófið í sjálfsvörn, til að halda sambandinu gangandi, en svo hafi þetta bara reynst alveg óskaplega gaman.

 

„Við erum bara venjulegt miðaldra fólk á Fáskrúðsfirði,“ segja hjónin Unnur Sveinsdóttir og Högni Páll Harðarson spurð hver þau séu og hvaða ævintýramennska það sé sem hafi hrundið þeim út í fimm mánaða mótorhjólaferðalag um Mongólíu, Úsbekistan, Kirgistan, Tadsjikistan og fleiri lönd sem Íslendingar hafa ekki verið iðnir við að heimsækja. „Við eigum okkur enga fortíð í mótorhjólakeppnum, torfæru eða slíku, við erum bara að elta draumana okkar.“
Unnur er myndlistarmenntuð og vinnur sem grunnskólakennari á Reyðarfirði og Högni er menntaður vélstjóri og viðskiptafræðingur sem vinnur hjá Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði. Hann hefur lengi verið heltekinn af mótorhjólabakteríunni og Unnur segir að hún hafi ekki átt annan kost en að taka mótorhjólapróf 2008 til þess að halda í hann. „Ég byrjaði eiginlega bara í sjálfsvörn, var nýbúin að kynnast Högna sem er gjörsamlega forfallinn, þannig að ég sá að til þess að láta þetta samband ganga neyddist ég til að taka próf. Svo reyndist þetta bara óskaplega gaman, við smullum saman þar líka.“
Þau hjón voru hvort á sínu hjóli í ferðinni og Unnur segir það ákveðið öryggisatriði. „Þegar fólk er saman allan sólarhringinn í marga mánuði getur kastast í kekki þannig að það er nauðsynlegt að geta farið hvort í sína áttina,“ segir hún hlæjandi.

 

23579  1

Alein úti í náttúrunni

Spurð um tildrög ferðarinnar segja þau að það hafi bara verið komið að því að stækka draumana eftir sex vikna ferð um Balkanskagann og austur til Rúmeníu árið 2010. „Þá sáum við hvað við erum fær um og hvað er hægt að gera í svona ferðum,“ segir Högni. Ferðin stóð yfir í fimm mánuði og viðkomustaðir voru fjölmargir; Mongólía, Úsbekistan, Kasakstan, Tadsjikistan og Kirgistan auk þess sem leiðin lá til Georgíu, Armeníu, Hvíta Rússlands, Rússlands og fleiri landa. „Þegar maður er orðinn forfallinn koma svona ögrandi staðir upp í hugann,“ segir Högni. „Fyrir þá sem stunda mótorhjólamennsku er Mongólía einna efst á þeim lista. Hún er risastór og mjög strjálbýl og fyrir borgarbúa og þá sem búa á þéttbýlli svæðum er alveg stórmerkilegt að koma á svona stað þar sem maður getur verið nánast aleinn úti í náttúrunni dag eftir dag. Svo eru það -stanlöndin sem hafa náttúrulega verið nánast lokuð frá hinum vestræna heimi lengi. Við vitum ekki til þess að nokkurt íslenskt mótorhjólafólk hafi farið þar um og það er gaman að fá að takast á við það að heimsækja svona staði.“
Spurð hvernig þeim hafi verið tekið á þessum stöðum segja þau Unnur og Högni að þau geti ekki kvartað yfir móttökunum. „Okkur var yfirleitt tekið rosalega vel,“ segir Unnur. „Fólk var mjög forvitið og ef við stoppuðum einhvers staðar var strax kominn hópur í kringum okkur en fólk var kurteist og gestrisið, elskulegt og hjálpsamt og við hittum alveg ógrynni af góðu fólki.“ Það er eitt af því sem þessi ferðamáti gefur manni,“ skýtur Högni inn í. „Maður er rosalega opinn og berskjaldaður fyrir umhverfi og fólki. Við erum auðvitað bara tvö og aldrei neitt ógnvekjandi eins og stærri hópar mótorhjólafólks geta verið eða lokuð frá umhverfinu eins og fólk inni í bílum er. Það er eitt af því sem gerir þennan ferðamáta svo skemmtilegan.“ „Fólk gefur sig á tal við mann hvar sem er,“ segir Unnur. „Maður er ekki fyrr sestur niður með kaffi og kleinu en það er einhver kominn til að spjalla, sama þótt það sé uppi á fjalli.“

 

23579  3

30.600 kílómetrar

Þau segja tungumálaörðugleika ekki hafa hamlað samræðum, þótt flestir töluðu ekki önnur tungumál en sín eigin. „Rússneska er töluð í flestum þessara landa, enda tilheyrðu þau flest Sovétríkjunum, og við lærðum rússneska stafrófið áður en við fórum og lærðum að segja svona grundavallarsetningar eins og: Ég tala ekki rússnesku. Það skipti reyndar engu máli þótt maður segði það, fólk hélt bara áfram að masa. Það eru mjög fáir sem tala nokkra ensku þarna, enda eru þetta ekki túristastaðir, nema þá helst Kirgistan þar er svolítill ferðamannaiðnaður, en þeir sem heimsækja svona lönd eru fyrst og fremst svona sérvitringar eins og við.“
Í heild hjóluðu þau Unnur og Högni 30.600 kílómetra á þessum fimm mánuðum en þeim finnst það ekkert sérlega mikið. „Þetta dreifðist á 147 daga,“ segir Högni. „Svo það var ekkert sérlega langt sem við fórum á hverjum degi. við tókum þetta bara einn dag í einu.“
Spurð hvort þau hafi ekki lent í eftirminnilegum ævintýrum, hlæja þau og segja engan hörgul hafa verið á þeim, en þau hafi aldrei lent í neinum hættum eða vandræðum. „Þetta voru endalaus ævintýri, en við eigum engar krassandi sögur um ógnir og hættur, því miður,“ segir Högni. „Þegar þú ferðast í 21 viku í beit ertu auðvitað alltaf að takast á við eitthvað óþekkt, en heilt yfir þá er þetta gríðarlega skemmtilegt.“

 

23579  4

Kvenlæg og öðruvísi mótorhjólabók

Unnur og Högni hafa nú gefið ferðasöguna út á bók, Vegabréf, vísakort og lyklar að hjólinu, og hún er skreytt miklum fjölda mynda úr ferðinni. Þau eru sérlega stolt af því að útgáfan hafi verið austfirsk frá a-ö. „Við tókum þá ákvörðun að gefa bókina út sjálf og vera ekkert að leita til útgefenda,“ segir Unnur. „Þannig hefðum við líka algjört ákvörðunarvald um allt sem bókinni viðkemur, gætum gert hvað sem okkur sýndist. Við fengum frábært fólk til liðs við okkur hérna fyrir austan, bókin er prentuð í Héraðsprenti á Egilsstöðum og Ingunn Þráinsdóttir sem þar vinnur hjálpaði okkur að hanna hana. Við lögðum mikið upp úr því að hún yrði falleg sjónrænt, mikið af myndum og fallegt letur og svo framvegis. Og við erum afskaplega ánægð með hana.“
Unnur skrifar texta bókarinnar og segir hann töluvert kvenlægan og ólíkan hinum týpísku mótorhjólabókum – hvernig sem þær nú séu. „Þetta er ferðasaga, saga af ástarsambandi, saga af því hvernig heimurinn opnast og reynist fullur af venjulegu, góðu fólki. Og þetta er saga af því hvar maður pissar á mótorhjólaferðalagi í útlöndum!“

Hvernig er að þurfa að hverfa aftur til venjulegs lífs eftir svona ævintýri, er þetta ekki alveg óbærilegt? „Ég er ekki viss um að ég vilji svara þessari spurningu,“ segir Högni og hlær. „Vinnuveitendur mínir gætu lesið þetta.“ „Dagarnir eru náttúrulega alveg óskaplega hversdagslegir, það verður að viðurkennast,“ segir Unnur. „En við erum þegar farin að plana næstu ferð, þannig að við lifum í tilhlökkuninni.“

23579  8

 

The post Tvö á mótorhjólum í fimm í mánuði appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652