Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kynferðislegt ofbeldi var best geymda leyndarmálið

$
0
0

Guðrún Jónsdóttir segir það hafa verið hræðilegt reiðarslag þegar hún gerði sér grein fyrir hversu útbreitt kynferðislegt ofbeldi er. Hún hafði starfað sem félagsráðgjafi í um 25 ár áður en hún gekk til liðs við Samtök um kvennaframboð og fékk þá fyrst inn á borð til sín kynferðislegt ofbeldi gegn konum og börnum. Guðrún varð talskona Stígamóta þegar þau voru stofnuð árið 1990. Hún segir samstöðu kvenna lykilinn að breytingum í heiminum og kallar eftir því að konur fylgi eftir Beauty Tips-byltingunni með aðgerðum.

„Samstaða kvenna er ástæðan fyrir þeim breytingum sem hafa orðið. Það er enginn sem gefur okkur vald – við þurfum að ná því sjálfar,“ segir dr. Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi sem tók þátt í stofnun Samtaka um kvennaframboð árið 1982 og stofnun Stígamóta árið 1990. „Samstaðan er númer eitt, tvö og þrjú. Það eru forréttindi að finna orkuna sem fylgir því að taka þátt í sameiginlegu átaki til að breyta heiminum og ég vona að sem flestar stelpur fái að upplifa slíkt einhvern tímann á ævinni,“ segir hún.

Guðrún fylgdist í fyrstu áhugasöm með Rauðsokkahreyfingunni af hliðarlínunni og þegar undirbúningur fyrir kvennaframboðið fór af stað ákvað Guðrún að leggja sitt á vogarskálarnar. „Mér fannst Rauðsokkurnar alveg meiriháttar. Ég veit satt að segja ekki alveg af hverju ég tók ekki þátt fyrr. Ég held að það hafi verið aldurinn, flestar þessar konur voru yngri en ég og höfðu aðra reynslu. Ég var fædd inn í kreppuna og engin umræða um réttindi kvenna þegar ég var að alast upp. Ég man að ég gerði oft athugasemdir við að ég þyrfti að vaska upp á meðan bræður mínir fengu að fara út að leika en fékk litlar undirtektir,“ segir Guðrún sem fagnaði 84 ára afmælinu á þriðjudag, 16. júní, og var tæplega fimmtug þegar Samtök um kvennaframboð voru stofnuð. „Ég mætti á stofnfundinn á Hótel Borg og skráði mig í vinnuhóp. Dagvistunarmálin voru það sem brann hvað mest á konum á þessum tíma. Launabaráttan var rétt að byrja og lítið sem ekkert talað um kynferðisofbeldi. Við lögðum áherslu á að fjölga dagvistunarrýmum. Konur voru að koma í auknum mæli út á vinnumarkaðinn en samfélagið var svo langt á eftir þegar kom að því að gera konum það mögulegt,“ segir hún.

Bjartsýnar í byrjun

Kvennaframboðið fékk tvo kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur og tvo á Akureyri. Kvennalistinn bauð fram í þremur kjördæmum árið eftir og hlaut 5,5% atkvæða. „Ég lenti efst á lista hjá Kvennaframboðinu. Það æxlaðist einhvern veginn þannig þó ég væri alls ekki að sækjast eftir pólitískum frama. Satt að segja varð ég þeirri stund fegnust þegar kjörtímabilinu í borgarstjórn lauk og ég gat einbeitt mér að starfi með konum og börnum sem höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Mér fannst ég gera miklu meira gagn í kvenfrelsismálum þar heldur en með því að þræta inni í borgarstjórn,“ segir hún.

Guðrún hafði starfað sem félagsráðgjafi frá árinu 1957 en hafði aldrei fengið mál sem snerist um kynferðisofbeldi inn á borð til sín fyrr en hún fór að starfa innan kvennahreyfingarinnar. „Við vorum nokkrar, félagsráðgjafar og lögfræðingar, sem settum á stofn Kvennaráðgjöfina sem enn er starfandi. Þegar við fórum fyrst af stað vorum við mjög bjartsýnar á að við gætum upprætt kynferðislegt ofbeldi en eftir því sem við unnum lengur í þessum málaflokki komu upp fleiri mál og fleiri birtingarmyndir ofbeldisins. Fram að þessum tíma var kynferðislegt ofbeldi best geymda leyndarmálið, sérstaklega kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Það myndaðist allt annað samband á milli okkar og þessarra kvenna sem leituðu til okkar því þarna var bara kona að tala við konu, frekar en fulltrúa stofnunar eða yfirboðara. Það sem kom okkur mest á óvart var hversu hryllilega algengt kynferðisofbeldi er. Það var hræðilegt reiðarslag þegar við gerðum okkur grein fyrir að þetta væri svona djúpstætt og útbreitt vandamál. Fyrst vorum við að vinna með konur sem hafði verið nauðgað, síðan sögðu konur okkur frá sifjaspelli, kynferðislegri áreitni á vinnustað, vændi og mansali. Eftir því sem umræðan jókst komu fram fleiri form valdbeitingar,“ segir Guðrún en Kvennaráðgjöfin var starfrækt í sjálfboðastarfi þar til þær stofnuðu Stígamót og var Guðrún sérleg talskona þeirra.

Valdatæki til að stjórna konum

Guðrún segist alltaf hafa gaman af því að tala við ungar konur og telur að það sé enn meiri hreyfing á baráttu kvenna en sést á yfirborðinu. „Ég er ekki mikið inni í þessum tölvuheimi en ég hef fylgst með fréttum af byltingunni þar,“ segir hún og vísar til byltingarinnar í Facebook-hópnum Beauty Tips þar sem hundruð kvenna hafa sagt frá því kynferðislega ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. „Mér finnst stórkostlegt að konur hafi fundið sér leið til að tala um sín mál,“ segir hún og ítrekar að umræðan um kynferðislegt ofbeldi sé ekki einkamál þeirra sem hafa orðið fyrir því. „Kynferðislegt ofbeldi er valdatæki, tæki til að hafa stjórn á konum og börnum. Þar með hefur þetta áhrif á allar konur, hvort sem þær hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi eða ekki. Þetta er yfirvofandi ógn sem stjórnar því hvernig við högum okkur og hvað við segjum. Í mínum huga hefur þetta aldrei verið spurning um „okkur“ og „þær.“ Þetta hefur áhrif á okkur allar og festir okkur í fjötrum ákveðinnar kvenímyndar og kvenhlutverka,“ segir Guðrún.

Eins hrifin og hún er af Beauty Tips-byltingunni segir hún að það sé ekki nóg að tala. „Þetta er stórkostleg byrjun en síðan þarf að fylgja þessu eftir. Það er ekki nóg að við sitjum og rekjum harma okkar. Við þurfum líka að gera kröfur á samfélagið um breytingar. Ég myndi vilja sjá framvarðasveit kvenna sem væri bara í „aksjón“ sem væri ekki hægt að víkja sér undan. Það þarf gríðarlegt átak til að breyta þessu,“ segir hún og leggur aftur áherslu á samstöðuna. „Ekkert af því sem ég hef hér talað um hefði gerst nema fyrir tilstilli samstöðu kvenna. Þetta eru ekki afrek einstaklinga heldur afrek sem samstaðan skapar. Samstaðan getur lyft grettistaki.“

The post Kynferðislegt ofbeldi var best geymda leyndarmálið appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652