Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hvað á að friða?

$
0
0

Í tillögu Landsnets að matsáætlun fyrir umhverfismat Sprengisandslínu eru bornir fram þrír valkostir til að styrkja flutning raforku um landið og sá möguleiki að 50 km af leiðinni verði í jarðstreng tengist þeim öllum. Landvernd mótmælir því að ekki skuli vera gerð grein fyrir möguleika á jarðstreng yfir allt hálendið í matsáætluninni. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 17. nóvember næstkomandi. Stefnt er að því að haustið 2016 verði umhverfismat tilbúið. Tæplega 33.000 manns hafa nú skrifað undir áskorun „Hjarta landsins“ til stjórnvalda þess efnis að hálendið verði friðað. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir brýnt að skýrt sé tekið fram hvaða hluta hálendisins eigi að friða.

„Það eru tveir möguleikar í stöðunni. Að flytja orkuna yfir Sprengisand eða fara svokallaða byggðaleið sem er hringinn í kringum landið,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, aðspurður um möguleikana til að styrkja flutningskerfi raforku. „Tilgangur mögulegrar framkvæmdar á Sprengisandi er að bæta raforkukerfi landsins en óstöðugleiki í rekstri byggðalínunnar og takmarkanir á orkuafhendingu standa í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun víða á landinu. Það liggur fyrir að það er ekki næg orka á Norður-og Austurlandi. Þar hafa til dæmis fiskvinnslustöðvar, mjólkurbú og bjórframleiðendur verið að kvarta. Það þarf að styrkja kerfið því gæðin eru óviðunandi. Þetta er bara ekki í takt við nútímasamfélag.“

Vegagerðin ekki með í matsáætlun

Nú er til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun tillaga Landsnets að matsáætlun fyrir umhverfismat Sprengisandslínu. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 17. nóvember næstkomandi. Guðmundur Ingi segir að verði áætlunin samþykkt eftir að athugasemdir hafi verið teknar til greina þá fari vinna við umhverfismat í gang sem ætti að vera tilbúið næsta haust. Í tillögu Landsnets eru bornir fram þrír valkostir til að flytja orkuna um landið og sá möguleiki að 50 km af leiðinni verði í jarðstreng tengist þeim öllum. Gísli Gíslason, landslagsarkitekt hjá Steinsholti ehf og ráðgjafi Landsnets við vinnu á matsáætlun, segir valkostina þrjá í matsáætluninni vera á tiltölulega þröngu belti, um 10 km breiðu og að í megindráttum séu leiðirnar í námunda við núverandi Sprengisandsleið. Upphaflega var Vegagerðin þátttakandi í vinnu við matsáætlunina en hún hefur nú dregið sig úr ferlinu. Gísli segir þó tekið tillit til mismunandi veglína í vinnu við umhverfismat. „Okkur finnst eðlilegt að horfa á þessi mannvirki í samhengi ekki síst vegna þess að áhrif línunnar eru fyrst og fremst sjónræn. Þá skiptir auðvitað máli hvar aðal leiðin yfir sandinn er. Það mun þurfa línuveg, sem er í eðli sínu ekki merkilegur vegur, en það liggur auðvitað fyrir að það þarf að bæta þá vegi sem eru þarna fyrir.“

Háspennulína eða jarðstrengur

Sprengisandslína er umdeild á meðal þjóðarinnar því ljóst er að framkvæmdir myndu hafa mikil áhrif á miðhálendið. Ein helsta gagnrýni hefur komið frá aðilum sem koma að hálendisverkefni Landsverndar, „Hjarta landsins“, sem leggur til að hálendið verði gert að friðuðum víðernum, þeim stærstu í Evrópu. Tæplega 33.000 manns hafa nú skrifað undir áskorun „Hjarta landsins“ til stjórnvalda þess efnis að hálendið verði friðað. Guðmundur Ingi segist ekki geta tekið afstöðu til þess en bendir á að kannski hafi ekki komið nógu skýrt fram hverskonar friðun sé verið að tala um. „Það hefur enginn sagt hvaða miðhálendi þetta er en það getur skipt miklu máli. Við gætum tæknilega verið með 50 km jarðstreng þvert yfir hálendið en ef menn eru að tala um eitthvað miklu stærra svæði þá er ekki víst að það sé mögulegt. Okkar mat er að umverfisvænst sé að fara yfir hálendið, það kemur best út meðal annars vegna þess að byggðalínan liggur líka að hluta til um miðhálendið, t.d. yfir Fjallabakssvæðið. Við verðum að fara vel í fagvinnuna, meta kosti og galla og taka svo upplýsta ákvörðun.“
„Línan myndi skera hálendið í tvennt, eyðileggja upplifun ferðamanna og útiloka að hægt verði að stofna þjóðgarð á miðhálendinu og þar með einstök tækifæri til atvinnusköpunar á landsbyggðinni“, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Landverndar, en Landvernd hefur sett upp áskorun á vefnum þar sem fólki gefst kostur á að taka undir kröfu samtakanna um að Landsnet falli frá nýútkominni áætlun sinni um Sprengisandslínu og að Skipulagsstofnun hafni matsáætlun um umhverfismat línunnar, því á henni séu verulegir annmarkar.

Beðið eftir nýrri landsskipulagsstefnu

Að mati Landverndar verður Landsnet að gera grein fyrir jarðstreng yfir allt hálendið í matsáætlun sinni, en ekki bara 50 km kafla og framkvæma sameiginlegt umhverfismat fyrir Sprengisandslínu og háspennulínur í byggð frá Blöndu í Fljótsdal, því þær línur séu hluti af heildaráformum Landsnets. „Þetta eru tæknilegu atriðin, en í reynd er þetta ósköp einfalt: Viljum við eyðileggja það aðdráttarafl sem óbyggðir okkar og víðerni hafa fyrir okkur sjálf og erlenda ferðamenn sem halda uppi stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnuveg landsins, ferðaþjónustunni?“, spyr Guðmundur Ingi sem telur einnig æskilegt að Alþingi kláraði afgreiðslu landsskipulagsstefnu en umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu á Alþingi í byrjun haustþings og er tillagan nú til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins. Í tillögu að landsskipulagsstefnu er sett fram stefna um að meiri háttar mannvirkjagerð verði beint að stöðum sem rýra ekki landslagsheildir hálendisins. Búist er við því að Alþingi ljúki afgreiðslu hennar fyrir þinglok.

 

 

The post Hvað á að friða? appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652