Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fimmtugsafmælinu fagnað í New York maraþoninu

$
0
0

„Ég æfði sund þegar ég var ung og þó hófust æfingar stundum á útihlaupi sem mér dauðleiddist,“ segir Eygló. „En eftir að ég eignaðist börnin mín varð einhvern veginn auðveldasta hreyfingin að fara bara út að hlaupa. Ég fann þá hvað útiveran gerði mér gott.“ Eygló hefur þó þurft að glíma við ýmis meiðsli tengd hlaupum. „Ég lenti í ýmsum óhöppum og fór meðal annars í aðgerð árið 2011 og ég bjóst því ekki við að geta hlaupið heilt maraþon.“ Það átti þó eftir að breytast og er það systur Eyglóar að þakka.

„Erla systir mín fagnar fimmtugsafmælinu nú í nóvember og hún fékk þá frábæru hugmynd að taka þátt í maraþoni í tilefni stórafmælisins.“ New York maraþonið varð fyrir valinu því það er þekkt fyrir mikið stuð og stemningu, en þátttakendur eru í kringum 50.000 og götur borgarinnar eru fullar af fólki, auk þess sem svið eru sett upp um alla borg þar sem ýmsir tónlistarmenn og skemmtikraftar stíga á stokk.

Eygló Traustadóttir var meðal 50.000 þátttakenda í New York maraþoninu sem fram fór þann 2. nóvember síðast liðinn. „Hlaupið leið ótrúlega hratt og það var mikið stuð á götum úti, en áætlað er að um tvær milljónir hafi fylgst með hlaupinu,“ segir Eygló. Mynd/Úr einkasafni.
Eygló Traustadóttir var meðal 50.000 þátttakenda í New York maraþoninu sem fram fór þann 2. nóvember síðast liðinn. „Hlaupið leið ótrúlega hratt og það var mikið stuð á götum úti, en áætlað er að um tvær milljónir hafi fylgst með hlaupinu,“ segir Eygló. Mynd/Úr einkasafni.

Fjölskyldan slóst með í för

„Við höfum hvorugar verið að hlaupa lengi en við höfðum rúm tvö ár til að undirbúa okkur. Við æfðum reyndar mikið sitt í hvori lagi, ég hjá ÍR skokki og hún hjá Laugaskokki.“ Fleiri úr fjölskyldunni áttu eftir að bætast í hópinn og tóku dóttir Erlu og frændi systranna einnig þátt í hlaupinu. „Það var alveg dásamlegt að fara svona mörg saman. Ekkert okkar hafði hlaupið heilt maraþon áður en við vorum staðráðin í hafa gaman,“ segir Eygló. Alls fóru 10 fjölskyldumeðlimir til New York í byrjun mánaðarins, ferðin varð því sannkölluð fjölskylduferð. „Foreldrar okkar og aðrir fjölskyldumeðlimir slógust í för með okkur og þau voru frábært klapplið og þetta var alveg stjarnfræðilega gaman.“

Fjórir fjölskyldumeðlimir þreyttu maraþonið, öll í fyrsta skipti og náðu þau öll settu markmiðið: Að klára hlaupið. Frá vinstri: Afmælisbarnið Erla Traustadóttir, Árni Ragnarsson, Eygló Traustadóttir og Þórdís Stella Þorsteinsdóttir, dóttir Erlu. Mynd/Úr einkasafni.
Fjórir fjölskyldumeðlimir þreyttu maraþonið, öll í fyrsta skipti og náðu þau öll settu markmiðið: Að klára hlaupið. Frá vinstri: Afmælisbarnið Erla Traustadóttir, Árni Ragnarsson, Eygló Traustadóttir og Þórdís Stella Þorsteinsdóttir, dóttir Erlu. Mynd/Úr einkasafni.

Góður tími bara bónus

Alls tóku um 20 Íslendingar þátt í maraþoninu og var Eygló með þriðja besta tímann af íslensku keppendunum, 3 klukkustundir og 47 mínútur, og lenti í 288. sæti í sínum aldursflokki. „Það gekk nánast allt upp hjá mér. Ég fékk engar blöðrur og lenti ekki í neinu veseni, en aðalmarkmiðið var að klára hlaupið, tíminn var bara bónus. Það hefði þó mátt vera nokkrum gráðum kaldara, en það hefur var óvenju heitt miðað við árstíma.“ Eygló ætlar að halda áfram að hlaupa í vetur, í hvaða veðri sem er. „Ef maður æfir í hópi bíða manns alltaf æfingafélagar ef maður bara klæðir sig og kemur sér af stað.“

„Ef maður æfir í hópi bíða manns alltaf æfingafélagar ef maður bara klæðir sig og kemur sér af stað.“

Jólaóskalisti hlauparans:

Góðir hlaupaskór: „Það skiptir máli að kynna sér hlaupaskó og ég hef verið að sjá sífellt fleira fólk koma til mín í sjúkraþjálfun með álagsmeiðsli eftir lélega skó. En góðir hlaupaskór þurfa ekki endilega að vera mjög dýrir. “

Hlaupaúr: „Eftir því sem maður hleypur meira eykst löngunin til að eignast hlaupaúr sem mælir vegalengdir, tíma, hlaupaleiðir og fleira, það getur verið hvetjandi að fylgjast með þessu öllu.“

Hlaupa- eða gönguferð: „Gjafakort í styttri og lengri ferðir finnst mér mjög aðlaðandi. Það er alveg ótrúlega margt í boði, innan- og utanlands, og hægt að gefa gjafabréf upp í slíka ferð. Mér finnst það að minnsta kosti mjög spennandi kostur.“

The post Fimmtugsafmælinu fagnað í New York maraþoninu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652