Hvernig byrjar þú daginn?
Ég vakna yfirleitt á milli 6 og 7 það fer svolítið eftir því hvaða árstíð er og hversu mikil dagskrá er í gangi hverju sinni. Ég stilli klukkuna til öryggis en er þó yfirleitt vöknuð á undan heimilisfólkinu en þá yfirgef ég partíið þar sem það eru oftast þrír karlmenn (á ýmsum aldri) í rúminu mínu. Mér finnst gott að ná smá stund í næði áður en allt fer á fullt á barnaheimilinu. Ég er með rútínu blæti og allt mjög hefðbundið hjá mér á morgnana en ég byrja alltaf á því bleyta andlitið með köldu vatni og þar með er ég vöknuð, ég fæ mér svo kreista sítrónu í volgt vatn en venjulega er ég eða maðurinn minn búin að undirbúa morgunverkin í eldhúsinu kvöldinu áður. Svo er það stúss í kringum börnin, morgunmatur, nesti og íþróttatöskurnar. Ég lauma mér alltaf í sirka 10 mínútur í þvottahúsið þar sem ég næ bæði að vinda af þvottahafinu og ná mér í tíu mínútna hugleiðslu.
Hvernig er hefðbundinn morgunmatur hjá þér?
Hinn eiginlegi morgunmatur er ekki á borðum fyrr en upp úr 10 en ég fæ mér 1-2 msk af olíu, hamp- eða hörfræjaolíu snemma morguns, því næst tek ég einhver bætiefni en það fer eftir því hvað líkaminn og árstíðin kallar á hverju sinni. Spirulina tek ég alltaf, það er mitt kaffi. Eftir morgunæfinguna drekk ég án undantekninga lífrænt kókosvatn og er sú stund einn af hápunktum dagsins hjá mér og svo fljótlega fer ég í græna sigtaða djúsinn en hann útbý ég í „slow juicer“ og set á glerflöskur fyrir vikuna.
Hvers konar hreyfingu stundar þú?
Jóga er mínar ær og kýr. Þegar allir eru farnir í leikskóla og grunnskóla geri ég jóga í 1-2 tíma í Sólum, heitt jóga finnst mér langbest en ég stunda Ashtanga og Yin jóga samhliða því heita. Á veturna skíðum við fjölskyldan og á sumrin er fátt betra en útivera í sveitinni og langar sundferðir.
Hvað gerir þú til að slaka á?
Ég slaka best á í einveru, þá finnst mér gott að hlusta á tónlist, lesa eða hugleiða. Ef ég er alveg út úr víruð finnst mér best að fara í jóga nidra og ná þannig útaf liggjandi djúpslökun.
Clik here to view.

Lumar þú á einu heilsuráði sem hefur gagnast þér vel í gegnum tíðina?
Treysta hyggjuvitinu og láta þann hafsjó af heilsuráðleggingum sem er þarna úti í léttu rúmi liggja, við erum svo ólík að upplagi og með mismunandi þarfir. En jú öll þurfum við góðan grunnsvefn, 6-7 klukkustundir, ekki fórna honum þrátt fyrir annir.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa?
Ég ýmist kenni eða iðka jóga á kvöldin svo það eru mínir töfrar til að tryggja góðan svefn. Flest virk kvöld fer ég í lavander bað með epsomsalti og kókosolíu, drekk magnesíum í heitt vatn og les. Einnig finnst mér dásamlegt að fara í sund á kvöldin og njóta heilandi áhrifa vatnsins þannig.
Hvert er furðulegasta heilsuráð sem þú hefur heyrt?
Öll heilsuráð sem ganga út á að gera eitthvað eitt eða borða eitthvað eitt og í því felist einhvers konar töfralausnir, ég tengi ekki við slík ráð. Eins hef ég aldrei náð utan um það að kaffi sé á einhvern hátt heilsueflandi.
The post Stundar hugleiðslu í þvottahúsinu appeared first on Fréttatíminn.