Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vaknar klukkan fimm og fær sér sex egg

$
0
0

Hvernig byrjar þú daginn?
Ég vakna flesta morgna klukkan 5, fæ mér vatnsglas og morgunmat. Ég er svo mættur í vinnu rétt fyrir klukkan sex.

Hvernig er hefðbundinn morgunmatur hjá þér?
5-6 egg, mikið af grænmeti, 1 ávöxtur og mikið af jómfrúar ólífuolíu.

Hvers konar hreyfingu stundar þú?
Crossfit.

Hvað gerir þú til að slaka á?
Blanda af nuddi, innrauðri gufu og heitum og köldum potti er rútína sem ég fer í gegnum á hvíldardögum frá æfingum. Í viðbót við það finnst mér mjög gott að setjast niður á kaffihúsi með góða bók eða tímarit til að slaka á.

Evert stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit í flokki 40-44 ára, sem fram fór um síðustu helgi. Myndir/Daníel Rúnarsson
Evert stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit í flokki 40-44 ára, sem fram fór um síðustu helgi. Myndir/Daníel Rúnarsson

Lumar þú á einu heilsuráði sem hefur gagnast þér vel í gegnum tíðina?
Það er mjög mikilvægt fyrir alla líkamsrækt og íþróttaiðkun að gefa sér góðan tíma í „mobility“ æfingar, það er nudd með boltum, rúllum eða öðrum nuddgræjum og fjölbreyttum teygju- og liðlosunaræfingum. Þetta flýtir fyrir bata eftir æfingar, eykur hreyfigetu, styrk og úthald og kemur í veg fyrir meiðsli. Þessar æfingar eru mikilvægar fyrir alla, íþrótta- eða kyrrsetufólk. Þær losa um vöðvabólgu og almennan stífleika sem er oft erfitt að eiga við. Ég fer einnig til kírópraktors einu sinni í viku til að rétta stoðkerfið af og endurstilla taugakerfið. Það hefur hjálpað mér óendanlega mikið og heldur mér sterkum og tilbúnum í hvaða átök sem lífið bíður upp á.

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa?
Það er misjafnt, en ég bursta alltaf tennur og klára armbeygjurnar mínar. Ég geri 100 armbeygjur á hverju kvöldi.

Hvert er furðulegasta heilsuráð sem þú hefur heyrt?
Líklega að bjór sé góður „recovery“ drykkur.

 

The post Vaknar klukkan fimm og fær sér sex egg appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652