Undanfarna daga hefur mér liðið mjög skringilega. Ég hef átt erfitt með að sofna og þegar ég loksins sofna þá sef ég illa. Ég svitna í tíma og ótíma og er mjög oft óglatt yfir daginn. Tilfinningar mínar eru líka í miklu ójafnvægi og það þarf ekkert til þess að ég bresti í grát. Og ekkert kjökur. Heldur græt ég hástöfum.
Ég á mjög erfitt með að ná mér niður og fjölskylda mín á erfitt með að sefa þessar tilfinningar mínar. Ég vil ekkert tala við annað fólk. Forðast það eiginlega mjög mikið. Konan mín hefur gert allt til þess að bæta þetta ástand en því miður dugar það ekki til. Hún er samt mjög skilningsrík og stundum grátum við saman. Það eina sem hefur varpað einhverri ljóstýru á þessa líðan mína undanfarna daga er dagskrá norrænu stöðvanna í fjölvarpinu. Samt er það stundum einum of yfirþyrmandi.
Ástandið er bara mjög vont. Það eru ekki allir sem skilja mig í þessum aðstæðum og það er erfitt að útskýra þetta. Fólk getur ekki sett sig í þessi spor ef það hefur ekki fengið að njóta þess sama og ég undanfarnar vikur. Ég er samt bjartsýnn. Ég verð að halda í vonina, það er það eina sem ég hef. Það sem heldur í mér lífinu er það að Saga Norén mun snúa aftur. Brúin er ekki hætt.
The post Brú yfir boðaföllin appeared first on Fréttatíminn.