Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Heimakær og hollustufrík

$
0
0

„Það er ótrúlega gaman að fá að vinna við það sem mann dreymir um, algjör draumur. Sérstaklega þar sem ég er svo ung,“ segir Sara um tónlistarferilinn. „Nú er ég bara að einbeita mér að tónlistinni. Það var svo mikið að gera í sumar og gekk svo vel með fyrsta lagið að ég ákvað að hvíla mig á skólanum. Nú er ég bara að safna fleiri lögum og fá meiri reynslu.“

Staðalbúnaður

Ég hef ekki neinn ákveðinn fatastíl, ég finn bara föt sem mér finnst kúl og kaupi þau. Ég þori líka að vera í öðruvísi fötum, reyni að vera ekki eins og allir aðrir. Mér finnst ég ekki þurfa að falla í hópinn.

Hugbúnaður

Þegar ég á lausan tíma teikna ég mikið. Ég elda líka rosalega mikið, mér finnst bæði gaman að elda og baka eitthvað gott. Uppskriftirnar finn ég til dæmis á Króm.is. Ég fer ekkert á djammið en ég fíla að fara á kaffihús. Mér finnst til dæmis gott að fara á Te og kaffi. Ég fer út að skokka annað slagið eða geri sjálf æfingar heima. Ég er alveg húkkt á Friends. Það er eina sjónvarpsefnið sem ég horfi á, ég horfi ekki á neinar stöðvar, og er frábært ef ég hef ekkert að gera eða er veik.

Vélbúnaður

Ég er með iPhone 6 sem er nokkuð nýr. Ég er á öllum samfélagsmiðlunum og er nýlega orðin svolítið aktív á Snapchat. Ég er að vísu enn að læra á það en ég fæ rosalega mikil viðbrögð frá fólki þar. Rosalega góð viðbrögð.

Aukabúnaður

Þegar ég borða úti fer ég oft á Fresco og Lókal, ég fíla svona salatstaði mikið. Ég er svolítið hollustufrík. Ég og kærastinn minn erum með bíl svo hann er svo heppinn að fá að skutla mér hingað og þangað, greyið. Við búum saman heima hjá fjölskyldu hans og ætlum að eyða jólunum í Barcelona þar sem systir hans býr. Það verður frábært. Uppáhaldsstaðurinn minn er heima hjá mér, ég er mjög heimakær.

The post Heimakær og hollustufrík appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652