Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vikan sem var: Siv fær 20 milljónir og Sigurður sviptur fálkaorðu

$
0
0

5

lögreglubílar á höfuðborgarsvæðinu verða búnir vopnum frá og með næstu viku.

368

milljarða gjaldeyristekjur koma inn vegna ferðaþjónustu á þessu ári, að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Í fyrra skilaði ferðaþjónustan 302 milljarða gjaldeyristekjum í þjóðarbúið.

Vilja opna bensínstöðvar

Forsvarsmenn Krónunnar kanna nú möguleika á að opna bensínstöðvar á lóðum verslana sinna. Viðræður við olíufélögin um bensín- og olíukaup hafa ekki skilað árangri og tíu króna munur er á verðhugmyndum á hvern lítra, að því Morgunblaðið greinir frá.

Sviptur rétti til að bera fálkaorðu

Forseti Íslands hefur svipt Sigurð Einarsson, fyrrum stjórnarformann Kaupþings, rétti til að bera fálkaorðuna. Forsetinn sæmdi Sigurð orðunni hinn 1. janúar árið 2007. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur er sviptur rétti til að bera fálkaorðuna.

Ásta Kristín sýknuð

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði hjúkrunarfræðinginn Ástu Kristínu Andrésdóttur og Landspítalann af ákæru um manndráp af gáleysi vegna andláts sjúklings. Þetta var í fyrsta skipti sem spítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir á grundvelli hegningarlaga.

19,6

milljónir króna hefur velferðarráðuneytið greitt til Sivjar Friðleifsdóttur, fyrrum þingmanns og ráðherra Framsóknarflokksins, í ráðgjafarstörf frá byrjun síðasta árs.

The post Vikan sem var: Siv fær 20 milljónir og Sigurður sviptur fálkaorðu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652