Tómatlöguð humarsúpa
fyrir 4
Nokkuð klassísk íslensk humarsúpa sem líka má bragðbæta, t.d. með hvítvíni, sérríi eða koníaki.
500 g súpuhumar í skel
1 msk olía
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
2−3 gulrætur
2−3 sellerístönglar
400 ml tómatmauk (passata)
pipar og salt
1,2 l vatn, sjóðandi
2 tsk fiskikraftur, eða eftir smekk
2½ msk smjör
2 msk hveiti
2 tsk karríduft
250 ml rjómi
e.t.v. cayennepipar eða paprikuduft
Brjóttu humarskeljarnar, taktu humarinn út, hreinsaðu hann og fjarlægðu görnina. Hitaðu olíuna í potti og brúnaðu skeljabrotin við góðan hita. Saxaðu lauk, hvítlauk, gulrætur, sellerí og steinselju og láttu krauma með í nokkrar mínútur. Hrærðu tómatmaukinu saman við ásamt pipar og salti, bættu vatni og fiskikrafti út í og láttu malla í 20−30 mínútur. Helltu öllu í sigti sem haft er yfir skál og notaðu sleif til að pressa sem mest í gegn. Mældu soðið og bættu við vatni svo það verði um 800 ml.
Bræddu 2 msk af smjöri í pottinum og hrærðu hveiti og karríi saman við. Láttu krauma í 1 mínútu. Helltu soðinu smátt og smátt út í og hrærðu stöðugt á meðan. Hrærðu rjómanum saman við og láttu malla í 5−10 mínútur. Bræddu á meðan ½ msk af smjöri á pönnu og steiktu humarinn við meðalhita í 2−3 mínútur.
Smakkaðu súpuna og bragðbættu með pipar, salti og e.t.v. cayennepipar eða paprikudufti. Helltu henni í skál eða á diska og settu humarinn út í. Berðu fram með góðu brauði.
The post Humarsúpan hennar Nönnu appeared first on Fréttatíminn.