Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Streita veldur ekki heilsutjóni

$
0
0

Það hefur lengi verið talið að þeir sem eru hamingjusamir séu líklegri til að lifa lengur. Niðurstöður breskrar rannsóknar sem voru birtar fyrr í vikunni í tímaritinu Lancet þykja afsanna þessa fullyrðingu.

Rannsóknin stóð yfir í tíu ár þar sem fylgst var með einni milljón miðaldra kvenna í Bretlandi og í ljós kom að hamingjan eða almenn velferð hefur engin áhrif á það hvenær fólk fellur frá. „Þetta eru góðar fréttir fyrir fýlupúka,“ segir Sir Richard Peto sem er prófessor í Oxfordháskóla og einn þeirra sem stýrðu rannsókninni. Hann ákvað ásamt kollegum sínum að koma þessari tilteknu rannsókn af stað því almennt er talið að óhamingja og streita valdi sjúkdómum. Það viðhorf kyndir undir þá skoðun að fólk geti kallað veikindi yfir sig með neikvæðni og ætti því að leggja áherslu á að vera jákvætt.

„Það kemur engum til góða að trúa einhverju sem er ekki satt,“ sagði Peto prófessor í viðtali og segir að það sé nóg til af sögum sem kyndi undir ótta um heilsufarið.

Í niðurstöðunum að talið að fyrri rannsóknir hafi ruglað saman orsök og afleiðingu þegar þær hafa dregið þá ályktun að óhamingja leiði til veikinda þegar í raun er það öfugt. Á þeim áratug sem rannsóknin stóð yfir voru engin merki þess að þær konur sem voru óhamingjusamar og stressaðar væru líklegri til að deyja en þær konur sem voru almennt hamingjusamar.
„Þessar niðurstöður sanna að það eru engin tengsl á milli streitu og ótímabærs dauða,“ segir Peto prófessor. Aftur á móti tekur hann fram að þó streita og óhamingja valdi ekki sjúkdómum þá geti hún vissulega haft neikvæð áhrif, til dæmis aukið hætti á sjálfsvígum, ýtt undir alkóhólisma og aðra hættulega hegðun.

Þetta er stærsta rannsókn sem unnin hefur verið á áhrifum hamingju á heilsufar, þó enn þurfi að vinna frekari rannsóknir til að styrkja niðurstöðurnar. Peto prófessor er þó viss í sinni sök á sama tíma og hann telur að þessar niðurstöður munu ekki breyta miklu. „Fólk mun halda áfram að trúa því að streita valdi hjartaáfalli.“

The post Streita veldur ekki heilsutjóni appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652