Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ungir drengir í Liverpool

$
0
0

Allt fór í gang á ný með Welcome Home-fagnaðinum laugardaginn 9. júní. Fjórir flytjendur hituðu upp fyrir Bítlana á fjögurra og hálfs tíma langri skemmtun sem kostaði meðlimi Cavern 6 skildinga og 6 pens og þá sem ekki voru meðlimir 7 skildinga og 6 pens (ef einhverjir kæmust inn). Júní hafði alltaf verið rólegur mánuður á tónlistarklúbbum í Liverpool, en ekki lengur. „Mér fannst eins og það væru þúsund manns þarna inni,“ sagði Barbara Houghton, sem var ein af þeim sem var alsæl með troðninginn. „Staðurinn var þjappaður og andrúmsloftið rafmagnað og rúmlega það. Þvílíkt kvöld, þvílíkt kvöld!“

Öryggin í rafmagnstöflunni í Cavern sprungu alltaf við slíkar aðstæður og þetta voru einu skiptin sem Bob Wooler missti málið. Mannfjöldinn stóð í hitakófi í einni kös með takmarkaða neyðarlýsingu en fólk hafði vit á að fyllast ekki skelfingu þar sem það var bara einn þröngur gangur að sleipum stiganum til að komast út. Bítlarnir voru nýfarnir af sviðinu þegar það gerðist. Þeir höfðu ært áhorfendur sína og voru komnir aftur í hljómsveitarherbergið með fjölda gjafa sem aðdáendur höfðu gefið þeim, þar á meðal nokkurra hæða háa svamptertu sem
Lindy Ness, Lou Steen og vinkona þeirra Susan Wooley höfðu bakað. „John var tilbúinn,“ skrifaði Lindy í dagbókina sína ásamt: „Skrifaði ofangreint heima hjá Paul því að við eyddum nóttinni þar.“
Það var allt saklaust ennþá – og gríðarlega spennandi. Þegar þau fóru frá Cavern stakk George af án hinna, ákafur í að láta á það reyna hvað nýi Ford Anglia-bíllinn hans hefði mikið aðdráttarafl hjá stelpunum. Pete fór út með Kathy, kærustunni sinni, og John og Paul leyfðu Lindy og Lou að fara með sér í sendibíl Neils til baka í suðurenda Liverpool. Í stað þess að skutla þeim heim tóku þeir stelpurnar með sér heim til Pauls þar sem þær fylgdust með þeim semja lag.
Please Please Me var afkvæmi Johns, getið áður en fjörutíu og átta stundir voru liðnar frá því að þeir komu heim frá London. Það var hægt að segja að Ask Me Why, Love Me Do og PS I Love You hefðu ekki gengið neitt sérstaklega vel hjá EMI en þarna var komið lag sem þeir gætu spilað fyrir þá næst. Hann minntist þess hvernig textinn og lagið komu saman inni á „hinu baðherbeginu heima hjá frænku minni við Menlove Avenue. Ég man eftir deginum og bleiku dúnsænginni á rúminu.“

EMI var hvatinn, en andagiftin kom annars staðar frá. Kveikjan að textanum kom frá laginu Please, lagi með Bing Crosby sem komist hafði í efsta sæti bandaríska vinsældalistans átta árum áður en John fæddist. Orðaleikurinn í upphafi lagsins vakti áhuga hans – „Please, lend your little ear to my pleas“ – og það varð innblásturinn að titli lagsins og textanum sem er endurtekinn. Tónlistarleg áhrif lagsins sótti hann til Roys Orbison. John sagðist hafa heyrt hann „spila Only The Lonely eða eitthvað“ en líklegast er að hann hafi ekki notast við neitt tiltekið lag, heldur stíl Orbisons og hvernig hann beitti vaxandi styrkleika og stökkum milli áttunda með dramatískum hætti. Þetta var ástarsöngur, en ekki samskonar sykurvella og hafði lekið yfir vinsældalistana alla ævi Johns. Þetta var ástarsöngur Liverpool-Lennons – eftir kurteisina í fyrsta orðinu er hann að hvetja stelpuna til þess að veita honum unað eins og hann veitir henni unað.
John sagði alltaf að lagið væri bara eftir hann og Paul staðfestir það, en þeir áttu samt báðir hlut að máli. Síðla kvölds 9. júní fylgdust Lindy og Lou með þeim fínpússa það þar sem þeir sátu hlið við hlið við píanó Jims Mac í fremri stofunni heima hjá Paul. Lindy man að „þeir unnu aðallega í hljómagangnum á meðan þeir fífluðust og spauguðu“. Stelpurnar, sem voru fimmtán ára, voru báðar með þeim alla nóttina (mömmurnar héldu báðar að hvor þeirra væri heima hjá hinni) og dottuðu síðar á gólfinu við píanóið á meðan Lennon- McCartney könnuðu hljóma fyrir ofan þær. „Þeir spurðu okkur hvað okkur fyndist um það,“ sagði Lou, „og við sögðum að það væri frábært. Það var vissulega frábært að sjá þá semja og að þeir skyldu ekki hafa neitt á móti því að hafa okkur þarna – en þeir voru alltaf svo rosalega afslappaðir með slíkt.“

Please Please Me kom ekki fram í dagsljósið fyrr en eftir nokkurn tíma, en Lennon-McCartney-lag var spilað í útsendingu BBC-útvarpsstöðvarinnar í fyrsta skipti sex dögum síðar og 1,8 milljónir hlustenda heyrðu það þannig í fyrsta skipti. Það var Ask Me Why og það var fyrsta lagið á efnisskránni í annað skiptið sem Bítlarnir komu fram í þættinum Here We Go sem tekinn var upp í Manchester 11. júní og sendur út föstudaginn 15. júní. Í samræmi við daglega efnisskrá sína á tónleikum gerðu þeir sér í þetta skiptið sérstakt far um að koma fram sem heild – John söng fyrsta lagið en Paul og George bakraddir; Paul söng annað lagið og John og George bakraddir; George söng það þriðja og John og Paul bakraddir. Aftur var þarna eitthvað sem aldrei hafði áður heyrst í útvarpi og nógu tilkomumikið til að þáttarstjórnandinn Peter Pilbeam ákvað að halda þeim á listanum yfir flytjendur sem hann vildi fá aftur. Þarna varð líka vart meiri fágunar svo að fjölhæfni þeirra kom betur í ljós. Besame Mucho var kraftmikill þytur um það sem kynnirinn kallaði „klassískt spænskt lag“. George söng lagið A Picture Of You glaðlega og af tilkomumiklu öryggi, en það sat í einu af fimm efstu sætum vinsældalistans þessa sömu viku og átti brátt eftir að verða fyrsta og eina lagið sem Joe Brown kom í fyrsta sæti. Útsendingin með Bítlunum kann jafnvel að hafa hjálpað til við að koma því þangað. Ask Me Why var best af öllum lögunum. George Martin hafði fundið ástæðu til þess að líta það hornauga en skoðun hans á því tengdist almennu neikvæðu áliti hans. Í rauninni var heilmikið áhugavert að gerast þarna og það að það skyldi birtast þarna er til marks um mikilvæga breytingu á Bítlunum frá mars og fram til júní 1962.

24214

The post Ungir drengir í Liverpool appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652