Nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Robert C. Barber, er afar hrifinn af starfi íslensku björgunarsveitanna sem hann segir veita sér mikinn innblástur. Barber tók formlega við embætti í janúar og í vændum er fyrsti þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna sem hann heldur á Íslandi. Í áratugi hefur hann grillað svokallaða pabbaborgara handa fjölskyldu sinni á þessum degi og deilir uppskriftinni með lesendum.
„Ég er mjög heppinn að hafa fengið að koma til Íslands,“ segir Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. „Þegar er sambandið milli þjóðlanda okkar mjög sterkt og ég lít á það sem forréttindi að fá tækifæri til að þróa það enn frekar,“ segir hann.
Barber afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt 28. janúar síðastliðinn og tók þar með formlega við embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Þegar tilkynnt var um skipun hans ávarpaði hann Íslendinga í stuttu myndbandi sem vakti mikla athygli þar sem hann kynnti sig til leiks á íslensku með orðunum: „Góðan daginn frá Ameríku. Ég heiti Rob Barber. Mér þykir það ánægjulegt og mikill heiður að vera næsti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.“
Barber er giftur Bonnie Neilan og saman eiga þau þrjá syni, þá Nicholas, Ben og Alexander sem allir starfa í Bandaríkjunum. Þeir voru hins vegar viðstaddir þegar hann afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni trúnaðarbréfið og tóku sér síðan góðan tíma til að kynnast landinu.
„Daddy´s Burgers“ 4. júlí
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna er á morgun, laugardaginn 4. júlí, en það var 4. júlí 1776 sem sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjamanna var samþykkt. Hún var fyrsta formlega yfirlýsingin sem sýndi fram á rétt þjóðar til að velja sín eigin stjórnvöld og markaði þar með mikilvæg þáttaskil í lýðveldissögunni.
Clik here to view.

Sendiherrann fór í betri fötin fyrir þjóðlega myndatöku í tilefni af því að 4. júlí er á morgun.
Barber er frá Cambridge í Massachusetts þar sem hann hefur starfað sem lögfræðingur, mikið til með frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum. Síðustu áratugi hefur verið haldið í sömu hefðirnar á fjölskylduheimlinu, steinsnar frá ánni Charles sem aðskilur Cambridge og Boston. „4. júlí er alltaf mikill hátíðisdagur, við grillum úti og vinir fjölskyldunnar líta við,“ segir Barber og bætir glettinn við að hann geti gefið uppskrift að sérréttinum sínum ef ég þrýsti mjög á hann. Þessi sérréttur á heimilinu kallaður „Daddy´s Burgers“ eða pabbaborgarar eins og það myndi útleggjast á íslensku. „Við grillum á kolum og viðarspæni. Síðan tek ég nautahakk og bý til tvö þunn buff fyrir hvern borgara. Ofan á annað buffið set ég síðan BBQ-sósu, tómata og ost, legg hitt buffið yfir og þrýsti aðeins á endana þannig að ekkert fari út úr þegar borgarinn er grillaður. Osturinn bráðnar inni í borgaranum og þessir borgarar eru ansi góður, þó ég segi sjálfur frá,“ segir hann. Barber tekur þó fram að tveir af sonum hans séu nú orðnir grænmetisætur þannig að ekki þýði lengur að bjóða þeim Daddy´s Burgers.
„Konan mín býr líka til fjöldann allan af góðum réttum, og það er alveg nauðsynlegt að bjóða upp á maísstöngul 4. júlí. Það er mjög bandarískt,“ segir hann. Þegar líða fer á kvöldið og aðeins farið að dimma fer fjölskyldan í göngutúr niður að ánni og hlýðir á Boston Pops sem leikur létta klassíska og popptónlist Boston-megin við ána. Að tónleikum loknum er hálftíma flugeldasýning fastur liður. Ég lauma að þeirri staðreynd að það sé ekki vænlegt að skjóta upp flugeldum á heiðbjörtum 4. júlí á Íslandi og Barber svarar með leikrænum tilbrigðum að hann gefi „no comment“ á það.
Kann að segja Eyjafjallajökull
Barber er hins vel kunnugt um að Íslendingar sprengja ógrynni af flugeldum á gamlárskvöld, og sömuleiðis að sala á flugeldum er helsta fjáröflunarleið björgunarsveitanna. Hann er nýfarinn að blogga á síðunni Ambassadorblogiceland.tumblr.com og í nýjustu færslunni segir hann frá heimsókn sinni á Hellu sem hann fór í til gagngert til að þakka Flugbjörgunarsveitinni fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf við að aðstoða bandaríska ríkisborgara í neyð á Íslandi. Hann fór með þeim á Eyjafjallajökul og segist vera orðinn ansi góður í að bera það orð fram. Áður en hann kvaddi meðlimi björgunarsveitarinnar festi hann síðan kaup á lyklakippu til styrktar starfinu sem hann er stoltur að eiga. „Mér finnst starfið sem björgunarsveitirnar sinna vera magnað, það veitir innblástur, er djarflegt og til marks um sanna dyggð. Þetta er algjörlega stórkostlegt starf,“ segir hann.
Mikill stuðningsmaður Obama
Clik here to view.

Barber heilsaði einnig upp á útklippta mynd af Obama, nánast í raunstærð, sem prýðir sendiráðið.
Barack Obama Bandaríkjaforseti tilnefndi Barber sem sendiherra í október 2013, en það var ekki fyrr en í desember síðastliðnum sem öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti skipun hans. Barber er meðlimur í Demókrataflokknum og var greint frá því á sínum tíma að hann hafi lagt mikla fjármuni í kosningasjóði forsetans á árunum 2008 til 2012. Barber hafði aldrei komið til Íslands áður en hann varð skipaður sendiherra og spurður af hverju hann vildi koma til Íslands segir hann að það hafi einfaldlega verð heiður að þjóna forsetanum og bandarísku þjóðinni. „Mitt upphaflega markmið var að Obama forsetaframbjóðandi yrði kjörin forseti árið 2008 og síðan að Obama forseti yrði endurkjörinn árið 2012. Stundum er talað um að sendiherrastöður séu einhvers konar verðlaun en mín verðlaun voru að Obama var kjörin og endurkjörinn forseti,“ segir hann.
Hann hefur gott eitt að segja af kynnum sínum af Íslendingum þá rúmu 5 mánuði sem hann hefur verið hér. „Ég hef kynnst góðu fólki úr öllum stigum þjóðfélagsins. Mér finnst Íslendingar vera sannir og afdráttarlausir í framkomu, auk þess að vera afar geðþekkir og skemmtilegir.“
Barber er afar spenntur fyrir því að halda upp á 4. júlí á Íslandi og hefur sjálfur frumkvæði að því að setja upp þjóðlegt bindi og klæða sig í rauða sokka við bláu jakkafötin og hvítu skyrtuna, svona fyrir þjóðlega myndatöku en rauðir sokkar tóna raunar einnig vel við heiti uppáhalds hafnarboltaliðs Barbers – Red Sox frá Boston. „Það er gaman að fá tækifæri til að fagna þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna á íslenskri grundu og klæða sig aðeins upp.“
The post Sendiherrann grillar Pabbaborgara appeared first on FRÉTTATÍMINN.