Hægeldað brisket með jólabragði
Best er að elda þetta deginum áður til að rétturinn verði sem bragðmestur.
Eldunartími 2-2,5 klst.
Uppskriftin er fyrir 6 manns.

Innihald:
– U.þ.b. 1,3 kg. brisket (við stofuhita)
– salt og pipar
– 2 lárviðarlauf
– 4 negulnaglar
– 10 svört piparkorn
– 2 stjörnuanis
– 1 kanilstöng, brotin í tvennt
– 2 tsk. sykur
– 2 tsk. worchestersósa
– 200 gr. þurrkaðir ávextir (t.d. fíkjur,apríkósur og sveskjur, jafnvel blandað saman) – skornir í tvennt eða í heilu
– 600 ml. rauðvín
– 2 dl. nautasoð
– 2 matsk. sólblómaolía
– 200 gr. gulrætur, flysjaðar og saxaðar gróft
– 450 gr. púrrulaukur, saxaður gróft
– 2 gulir laukar, saxaðir fínt
Hitið ofninn í 150°C. Þerrið brisketið og setjið eina matskeið af sólblómaolíu á steikarpönnu og brúnið brisketið vel á báðum hliðum, þar til það er orðið gullinbrúnt. Takið brisketið af pönnunni og færið í ofnfast form með loki.

Bætið annarri matskeið af sólblómaolíu á steikarpönnuna og steikið gula laukinn í u.þ.b. 2 mínútur, bætið þá púrrulauk, gulrótum og kryddi út í og steikið í nokkrar mínútur til, bætið nú rauðvíni við og skrapið botninn á pönnunni til að ná fram öllu brisketbragðinu. Nú má setja nautasoðið út í og hita að suðu, hér er rétta að staldra við og salta og pipra eftir smekk. Þegar suðunni er náð, takið þá pönnuna af hitanum og hellið yfir brisketið. Lokið forminu vel og stingið því inn í heitan ofninn. Eftir um það bil klukkustund skuluð þið snúa brisketinu við í forminu.
Eftir 2-2,5 klukkustundir takið þið formið úr ofninum og látið kólna, ef hægt er veiðið þá fituna ofan af. Daginn eftir er rétturinn hitaður upp og er gott að bera hann fram með kartöflumús.
Ef svo ólíklega vill til að afgangur verði af réttinum þá er hann bara enn betri að einum degi liðnum.

The post Hægelduð hátíðarsteik hjónanna á Hálsi appeared first on Fréttatíminn.