Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Flóttamenn fjölmenna í jólamat Hjálpræðishersins

$
0
0

„Sumir hafa mætt á hverju aðfangadagskvöldi árum saman, en meirihlutinn er fólk sem hefur aldrei komið áður og síðustu ár hefur hælisleitendum og flóttamönnum verið að fjölga mikið,“ segir Hjördís Kristinsdóttir, ritari á skrifstofu Hjálpræðishersins, spurð um samsetningu gesta í árlegum jólakvöldverði Hersins á aðfangadagskvöld. „Þeir koma þá með börnin sín með sér og það er ánægjulegt að fá börn með í gleðskapinn.“
Lengst af var boðið til borðs í sal Hjálpræðishersins við Kirkjustræti, en hann er nú orðinn of lítill og eru þetta önnur jólin sem borðhaldið fer fram annars staðar. Í fyrra var það á Tapashúsinu en í ár verður það í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík. Öll vinna í kringum samkomuna er unnin í sjálfboðavinnu og mörg fyrirtæki styrkja Herinn til matarkaupa. „Við höfum þurft að kaupa eitthvað af matnum, en fyrirtæki hafa verið dugleg að styrkja okkur og það eru tveir kokkar sem sjá um að elda fyrir okkur í sjálfboðavinnu, auk þess sem margir koma að því að pakka inn jólagjöfum, leggja á borð og skreyta og ganga svo frá á eftir, allt í sjálfboðavinnu.“
Auk matarins er boðið upp á tónlistaratriði, jólapökkum útdeilt og gengið í kringum jólatré. „Þetta er alveg hefðbundið jólahald,“ segir Hjördís. „Jólin snúast um fleira en það að borða.“
Eins og fram hefur komið í fréttum er Hjálpræðisherinn að selja hús sitt við Kirkjustræti og hyggur á flutning úr miðbænum, þetta gætu því verið síðustu jólin sem jólamaturinn verður í miðborginni, en Hjördís segir þó alltof snemmt að segja til um það. „Það veit enginn ennþá hvert við förum, það kemur bara í ljós. Ég veit svo sem ekkert hvort jólamaturinn á næsta ári verður í miðbænum, en Hjálpræðisherinn mun allavega halda þessum sið áfram eins og hann hefur gert í áraraðir, hvar sem það verður.“

 

The post Flóttamenn fjölmenna í jólamat Hjálpræðishersins appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652