„Við útskrifuðumst allar á svipuðum tíma úr ritlistinni í H.Í. og að sumu leyti var þetta okkar leið til að viðhalda samskiptunum,“ segir Sigurlín Bjarney Gísladóttir, ein sjö skáldkvenna sem mynda Skáldasamsteypuna Skóginn og sendu á dögunum frá sé ljóðabálkinn Ég erfði dimman skóg. „Sumir stofna saumaklúbb, við gerðum þetta.“
Ljóðin í bálknum eru ort út frá og í kringum ljóðið Madrigal eftir nóbelsskáldið Tomas Tranströmer, hvers vegna völdu þær það ljóð? „Í náminu kynnti Sigurður Pálsson okkur fyrir ljóðum Tranströmers og strax þegar við veltum upp þessari hugmynd vorum við sammála um að nota Madrigal sem uppsprettu. Fórum að skoða hvaða ljóð við ættum í fórum okkar sem gætu passað inn í þann ramma. Skoðuðum arfinn; hvað tökum við okkur í arf og hvað fáum við í arf án þess að vilja það. Skógarþemað heillaði okkur líka, það býður upp á svo sterkt myndmál í skáldskap. Við sáum þó fljótlega að það var líka heilmikill sjór í bókinni og mætti kannski segja að sjórinn eða hafið sé okkar skógur hér á Íslandi.“
Hvernig unnuð þið þetta? „Hver og ein okkar mætti með fullt af ljóðum sem við settum saman í risastórt handrit og svo var mesta vinnan að grisja. Við vorum mjög fljótar að ákveða að þetta ætti að vera samvinnuverkefni og það ætti ekki að koma fram hver okkar ætti hvaða ljóð. En þrátt fyrir að ljóðin séu ekki unnin í sameiningu frá grunni þá var endurritunin hluti af sköpunarferlinu og við unnum og endurmótuðum mörg ljóðanna í sameiningu. Mesti hausverkurinn var eiginlega að raða ljóðunum saman þannig að þau kölluðust á og úr yrði einhver heild.“
Spurð hvort það sé ekkert erfitt að vera svona margar að vinna sama bálkinn segir Sigurlín Bjarney það hafa fleiri kosti en galla. „Það var mjög gaman að vera svona margar að koma þessu saman og standa að útgáfunni, en það getur líka verið erfiðara en að vera ein. Það reyndi þó nokkuð á samvinnuna, sérstaklega við ritstjórnina, en ég uppgötvaði þegar bókin var að fara í prentun að þetta er svolítið eins og að vera í hljómsveit þar sem allir leggja sitt fram og vinna og skapa saman. Vináttan sem myndast í ritlistarnáminu og í svona vinnu er mjög dýrmæt og þetta gekk í rauninni alveg ótrúlega vel. Þrátt fyrir það hvað við erum ólíkar, bæði sem manneskjur og skáldkonur, þá small margt alveg merkilega vel saman. Kannski hugsum við svona líkt þrátt fyrir allt.“
Ætlið þið að halda þessari samvinnu áfram? „Ég veit það ekki. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun í því efni, en það væri vissulega gaman. Eigum við ekki bara að leyfa því að koma í ljós?“
Skáldasamsteypuna Skóginn skipa þessar skáldkonur:
Guðrún Inga Ragnarsdóttir
Halla Margrét Jóhannesdóttir
Heiðrún Ólafsdóttir
Hrafnhildur Þórhallsdóttir
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Soffía Bjarnadóttir
Æsa Strand Viðarsdóttir
The post Sjórinn er okkar skógur appeared first on Fréttatíminn.