Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kærkominn tími samveru og hvíldar

$
0
0

Vetrarsólstöður eru í dag, þriðjudaginn 22. desember, og sólargangur því stystur. Dag tekur því að lengja á ný. Þótt skammdegið vari enn um hríð er það fagnaðarefni í hvert eitt sinn er sól tekur að hækka á lofti á ný, ekki síst á norðlægum slóðum þar sem dagskíma er stutt á þessum árstíma. Í vændum eigum við hins vegar nóttlausa tíð þegar vorar.

Jólin eru fram undan, sú forna og nýja sólhvarfahátíð þegar endurkomu sólarinnar er fagnað, miðsvetrarhátíð er síðar varð hátíð kristinna manna. Ýmsum þykir nóg um tilstandið vegna jólanna – og vafalaust fara einhverjir fram úr sér í tilefni þeirra. Fyrir flesta er jólahátíðin þó kærkomin hvíld eftir talsvert at í aðdraganda þeirra, ljósanna hátíð þegar myrkrið er mest. Um jól gera menn sér dagamun í mat og drykk, koma saman og eiga góðar stundir. Aðventan er einnig tími samveru fjölskyldna og vina og ekki síst tími barnanna. Það er gaman að föndra eða baka með börnum. Ánægja þeirra er einlæg sem og tilhlökkun til jólanna. Það er spennandi að fá eitthvað fallegt í skóinn frá jólasveininum og síðan pakka sem bíða undir skreyttu jólatré. Sama má segja um þann góða sið að senda vinum og ættingjum jólakort með hlýjum kveðjum. Maður er manns gaman og fátt jafnast á við það að eiga góða að.

Tími gefst oft um jól og áramót að staldra við, líta yfir farinn veg og jafnframt fram á veginn til þess nýja árs sem bíður með tækifæri sín og áskoranir. Fagna ber því sem vel hefur gengið en um leið eiga margir um sárt að binda, einkum þeir sem sjúkir eru eða hafa misst einhvern sér nákominn. Jólin eru ekki síst sá tími sem fólk hugsar til þeirra sem gengnir eru. Það sést best á heimsóknum fólks að leiðum ástvina í kirkjugörðum landsins yfir jólin. Kirkjugarðarnir eru fallega skreyttir og ljósum prýddir. Þar er því gott að eiga stund og hugsa hlýtt til þeirra sem á undan fóru og ruddu brautina fyrir okkur.

Rétt er einnig að minnast þess að í velferðarsamfélagi okkar standa ekki allir jafnt að vígi. Margir eru þeir sem ekki ná endum saman af ýmsum ástæðum, þótt atvinnuleysi hafi sem betur fer minnkað mjög frá því er verst lét í kjölfar hrunsins. Fátt er verra böl vinnufúsum höndum en atvinnuleysi. Ýmsar hjálparstofnanir liðsinna þeim sem verst eru settir, en það er blettur á okkar ágæta samfélagi að fólk sé í þeirri stöðu að þurfa að leita á náðir góðgerðasamtaka með matar- eða fataúthlutun um jól – eða á hvaða öðrum tíma ársins sem er.

Þegar á heildina er litið er engu að síður ástæða til bjartsýni. Árið sem er að líða hefur að flestu leyti verið þjóðinni hagstætt. Við höfum náð okkur upp úr öldudalnum og góðæri verið til lands og sjávar. Mest hefur munað um áframhaldandi uppgang ferðaþjónustunnar sem skilar æ meira til þjóðarbúsins, þótt vissulega beri að fara með gát í umgengni við viðkvæma íslenska náttúru. Ekki verður annað séð en framhald verði á vinsældum Íslands meðal erlendra ferðamanna, komi ekkert óvænt upp á. Kappsamlega er einnig unnið að afnámi hafta sem mikilvægt er fyrir hagsmuni einstaklinga, fyrirtækja og þjóðar, þótt þar beri vissulega að fara með gát til að forðast kollsteypu. Tekist hefur að halda verðbólgu í skefjum þrátt fyrir umtalsverðar launahækkanir á því ári sem er að líða.

Það er því full ástæða til að gleðjast og halda hátíðleg jól, njóta samvistar við aðra og hvíldar og endurnæringar í kjölfar undirbúnings hátíðahaldanna, hvort heldur er við bóklestur, hressandi útivist eða annað sem nærir líkama og sál.

Fréttatíminn óskar landsmönnum gleðilegra jóla.

The post Kærkominn tími samveru og hvíldar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652