Baltasar Kormákur
Baltasar er orðinn fastur gestur á himni rísandi stjarna enda er hann fyrsti íslenski leikstjórinn til að komast inn fyrir dyragættina á draumverkstæði flestra leikstjóra. Kvikmyndin Everest fékk misjafna dóma en líklegt er að metnaður og elja Balta muni fleyta honum enn lengra. Nýjasta afurð hans, sjónvarpsserían Ófærð, hefur þegar fengið góðar viðtökur og verið seld fyrir tugi milljóna til útlanda.

Siggi Sigurjóns
Það er óhætt að segja að 2015 hafi verið ár eins ástsælasta leikara þjóðarinnar. Siggi Sigurjóns hefur brugðið sér í ótal gervi á löngum og farsælum ferli en kom samt öllum á óvart með því að leika í textamyndabandi Of Monsters and Men. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um netið og erlendir miðlar líktu gráskeggjuðum Sigga við Robin Williams. Skegginu hafði Siggi safnað fyrir kvikmyndina Hrúta þar sem hann átti líka leiksigur, ekki síður en í nýrri Spaugstofusýningu í Þjóðleikhúsinu.

Almar allsberi
Myndlistarneminn Almar Atlason fór úr fötunum og kom sér fyrir inni í glerkassa og skyndilega fékk öll þjóðin áhuga á myndlist. Þúsundir fylgdust með Almari á Youtube og sama hversu skiptar skoðanir fólk hefur á verkinu sjálfu þá fékk Almar þjóðina til að velta fyrir sér tilgangi og eðli listarinnar og geri aðrir betur. Það verður spennandi að fylgjast með þessum unga listamanni í framtíðinni.

Gísli Pálmi
Þessi kjaftfori drengur hefur verið áberandi meðal ungu kynslóðarinnar í nokkur ár en steig fram í stjörnubjart sviðsljósið á þessu ári með sinni fyrstu breiðskífu sem ber nafn kappans. Platan fékk ágætis dóma, rokseldist, kom rapparanum í spilum á útvarpsstöðvum og upp á aðalsviðið á menningarnótt borgarinnar þar sem hann blótaði sig í gegnum kvöldið við misjafnar undirtektir þeirra sem á hlýddu.

Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir
Adda kom af stað byltingu í mars þegar hún frelsaði geirvörtuna á Twitter. Fjöldi kvenna beraði brjóstin henni til stuðnings til að sýna fram á fáránlegar afleiðingar hlutgervingar kvenna. Geirvörtudagurinn var svo haldinn hátíðlegur á ný þann 13. júní þar sem hópur kvenna sýndi frelsun geirvörtunnar stuðning.

Kári Stefánsson
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefur aldrei verið hræddur við að tjá sig í fjölmiðlum og hefur verið duglegur við að gagnrýna ríkisstjórnina þetta árið. Kári heillaði landsmenn upp úr skónum þegar hann færði Landspítalanum jáeindaskanna að gjöf í ágústmánuði. Tækið kostar um milljarð íslenskra króna og mun skipta sköpun fyrir meðferð krabbameinssjúklinga. Hann náði líka vel til yngri kynslóðarinnar eftir að fylgst var með degi í lífi hans í sjónvarpsþætti, en þar tók hann vel á því í ræktinni og lét marga frábæra frasa fjúka.

Bryndís Björgvinsdóttir
Rithöfundurinn og aktívistinn Bryndís náði heldur betur að vekja samkennd með ömurlegri stöðu sýrlenskra flóttamanna með átakinu „Kæra Eygló Harðar“. Yfir 18.000 manns skráðu sig á viðburðinn sem var skapaður til að setja þrýsting á íslensk stjórnvöld til að taka við fleiri sýrlenskum flóttamönnum og yfir 1000 manns skráðu sig sem sjálfboðaliða hjá Rauða krossi Íslands. Bryndís var auk þess áberandi í jólabókaflóðinu annað árið í röð.

Kristín Þorsteinsdóttir
Kristín náði mögnuðum árangri á Evrópumeistaramóti DSISO, sem eru alþjóðleg samtök fyrir sundfólk með Downsheilkenni. Mótið fór fram í desember og setti Kristín alls tíu Evrópumet og tvö heimsmet.

Sigrún Þ. Geirsdóttir
Sigrún komst í fjölmiðla landsins í ágúst þegar hún synti, fyrst íslenskra kvenna, yfir Ermasund. Sundið tók 22 klukkustundir og 34 mínútur.

Katrín Tanja Davíðsdóttir
Katrín Tanja sigraði á heimsleikunum í CrossFit í júlí og hefur síðan verið kölluð hraustasta kona heims. Katrín Tanja, sem fékk 38 milljónir í verðlaun, er annar Íslendingurinn sem fær nafnbótina Hraustasta kona heims en hana hlaut Annie Mist Þórisdóttir árin 2011 og 2012.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía náði þeim magnaða árangri að tryggja sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröð kvenna í golfi. Mótaröðin er sú sterkasta í Evrópu.

Rúnar Rúnarsson
Kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fékk fyrstur Íslendinga gullverðlaun á San Sebastian kvikmyndahátíðinni fyrir sína fyrstu mynd í fullri lengd. Kvikmyndahátíðin er ein sú virtasta í bransanum.

Jóhann Jóhannsson
Jóhann Jóhannsson varð í janúar fyrsti Íslendingurinn til að hljóta Golden-Globe verðlaun en þau fékk hann fyrir bestu frumsömdu tónlistina fyrir kvikmyndina The Theory of Everything.

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson
Árangur A landsliðs karla undir stjórn þeirra Lars og Heimis er hreint út sagt ótrúlegur og hefur vakið verðskuldaða athygli langt út fyrir landsteinana. Þeir komu strákunum á lokakeppni EM í sumar í fyrsta sinn og mun þjóðin eflaust verða límd við skjáinn þegar kemur að fyrsta leik, alla vega þeir sem ekki fara út til Frakklands.

Sævar Helgi Bragason
Sólmyrkva-Sævar varð þjóðþekktur eftir að hann stóð fyrir því að öll grunnskólabörn á Íslandi fengju ókeypis sólmyrkvagleraugu fyrir sólmyrkvann þann 20. mars. Hann vildi einfaldlega að öll börn fengju að njóta sólmyrkvans.

Þröstur Leó Gunnarsson
Hásetinn og leikarinn Þröstur Leó drýgði gríðarlega hetjudáð þegar hann bjargaði tveimur skipsfélögum sínum frá drukknun þegar báturinn Jón Hákon sökk. Sjálfur komst Þröstur á kjöl og dró félaga sína upp úr sjónum.

Steiney Skúladóttir
Steiney var úti um allt í ár og það gekk allt upp hjá henni. Hún frelsaði geirvörtuna í Hraðfréttum, tróð upp með Reykjavíkurdætrum og hvatti landsmenn áfram í Reykjavíkurmaraþoninu. Svo eitthvað sé nefnt.

Atli Fannar Bjarkason
Ritstjóri Nútímans hefur vakið athygli fyrir fersk efnistök. Eftirminnilegast er myndbandið Gerðiþaðekki sem hann gerði í félagi við tónlistarmanninn Stoney þar sem framsóknarkonan Sveinbjörg Birna er í aðalhlutverki. Atli Fannar þykir meira að segja svo sniðugur að hann var fenginn til að vera einn af höfundum áramótaskaupsins. Rödd ungu kynslóðarinnar, þó hann sé reyndar kominn vel yfir þrítugt sjálfur.

Stjörnuhröp
Mahlín
Systurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand voru handteknar í maímánuði eftir að hafa reynt að kúga fé út úr forsætisráðherra vorum ella myndu þær láta viðkvæmar upplýsingar um hann leka í almenning. Málið þótti hið undarlegasta og í það minnsta farsakennt en systurnar voru staðnar að verki og handteknar úti í Hafnarfjarðarhrauni þangað sem þær mættu í þeirri von að taka við greiðslu í tösku frá forsætisráðherranum. Viðkvæmar upplýsingarnar áttu að tengja forsætisráðherra við kaup Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda og eins aðaleigenda Pressunnar ehf., á DV en ekki hafa fundist nein gögn sem tengja ráðherrann við fjölmiðlaveldi Björns Inga né lánveitingu til fyrirtækisins. Systurnar bíða nú örlaga sinna.


Biggi lögga
Biggi lögga var áberandi í samfélagsumræðunni allt frá því hann byrjaði að birta pistla á Facebook-síðu lögreglunnar fyrir tveimur árum. Skrif Bigga löggu, til að mynda um umdeilt nauðgunarmál á dögunum, hafa fallið í misjafnan jarðveg og í desember ákvað Biggi að víkja úr hlutverki brosmildu löggunnar þó hann muni enn starfa í lögreglunni.

Ásmundur Einar Daðason
Ekki fór vel fyrir framsóknarþingmanninum unga í ferð utanríkismálanefndar Alþingis til Washington í maímánuði. Ásmundur kastaði upp við nokkur sæti nálægt salernisaðstöðu flugvélarinnar við lítinn fögnuð viðstaddra, sér í lagi þar sem hann var talinn vera sótölvaður. Fregnir af drykkju þingmannsins bárust fjölmiðlum og voru studdar af frásögn ónafngreindrar flugfreyju en þingmaðurinn blés á þær sagnir og sagðist hafa verið magaveikur.

Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, fór úr starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps með skottið milli lappanna í janúar eftir að hafa orðið uppvís að fjárdrætti úr hirslum hreppsins. Björgvin sagði að um dómgreindabrest sökum áfengisdrykkju væri að ræða og fór í kjölfarið á Vog. Hann sat í stutta stund á þingi í október sem varaþingmaður fyrir Oddnýju G. Harðardóttur en það lagðist ekki vel í unga jafnaðarmenn sem báðu hann um að stíga til hliðar.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ferðamálaráðherrann lagði fram frumvarp um náttúrupassa sem fékk harða gagnrýni nær allra sem höfðu eitthvað um málið að segja. Passinn dagaði upp og ekkert hefur verið ákveðið með gjaldtöku á ferðamannastöðum.

The post Stjörnurnar á himni ársins 2015 appeared first on Fréttatíminn.