Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ósnobbaður og morgunfúll sveitastrákur

Þröstur Leó fæddist á Bíldudal 23. apríl 1961, fjórði í röð sex systkina, fimm bræður og ein systir. Foreldrar hans voru Gunnar Valdimarsson, bóndi og flugumferðarstjóri fyrir vestan og Vilborg Jónsdóttir ljósmóðir, sem hefur tekið á móti næstum öllum í bænum. Þröstur ólst upp á Bíldudal í þessum stóra systkinahópi og var margt brallað og sprellað eins og við mátti búast.
Skólaganga hans var á köflum mjög erfið, bæði fékk hann ítrekað eyrnabólgur og heyrði mjög lítið og svo var hann lesblindur sem ekkert var verið að greina í þá daga, börn voru bara heimsk, eins og aðstandandi hans orðar það, og það viðhorf að hann væri heimskur var að sögn ættingja mjög sterkt hjá Þresti þegar hann var barn.
Átján ára fór Þröstur suður til Reykjavíkur til að læra bifvélavirkjun í Iðnskólanum en náði ekki að halda sér að náminu. Hann ákvað þá í einhverju bríaríi að fara á leiklistarnámskeið hjá Helga Skúlasyni heitnum sem hreifst af leikhæfileikum unga mannsins og hvatti Þröst til að sækja um í Leiklistarskólann. Hann komst inn í skólann og var á augabragði kominn inn í hóp fólks sem hafði allt annan bakgrunn og áhugamál en hann, eða eins og einn viðmælandinn lýsir því: „Það hlýtur að hafa verið dáltið skrýtið fyrir sjómanninn að vera kominn allt í einu í menningarelítu Reykjavíkur þar sem fólk hlustaði á franska söngvara og drakk rauðvín – hann sem vildi bara vodka í kók og hlustaði á Megas. Hann segir stundum söguna af því þegar hann fór með bekknum sínum í Leiklistarskólanum til Parísar á mjög fínan veitingastað og allir voru mjög dannaðir og flottir. Þröstur pantaði sér tvöfaldan vodka í kók með fínu sniglunum og yfirþjónninn hélt í fyrstu að það væri verið að gera grín að sér, en þegar það rann upp fyrir honum að Þresti væri alvara gat hann ekki leynt viðbjóðnum þegar hann henti glasinu á borðið fyrir framan hann.“
Þröstur kynntist eiginkonu sinni, Helgu Sv. Helgadóttur, árið 1997 og þau giftu sig 2004. Þröstur átti 4 börn fyrir og Helga 2 þannig að það var töluvert púsl að mynda eina sterka fjölskyldu. „Það var oft mikið fjör hjá okkur og læti fyrstu árin og við ákváðum að einbeita okkur að þeim pakka, þar sem það getur tekið á að sameina svona fjölskyldur,“ segir Helga. „Þau eru þó öll alveg svakalega góðir vinir og María – dóttir okkar – fæddist svo 2005.“
Þrátt fyrir að hafa búið í Reykjavík meira og minna frá unglingsárum og verið hluti af menningarelítunni er Þröstur sagður mikill sveitastrákur sem ekki kunni almennilega við sig annars staðar en á Bíldudal. „Hann er mikill sveitastrákur og það er eins og hann passi ekki fullkomlega í púslið fyrr en hann kemur vestur á Bíldudal og fer að veiða,“ segir einn viðmælenda. „Þröstur er mikill vinnuþjarkur en getur líka verið afskaplega latur. Hann er hrókur alls fagnaðar í veislum og með fólki sem hann treystir. Þar reytir hann af sér brandara og skemmtisögur, enda þekki ég engan sem segir eins skemmtilega frá og hann. En eins og hann getur verið svakalega fyndinn þá getur hann líka verið afskaplega ófyndinn og bara alls ekki hitt í mark þegar sá gállinn er á honum.“
Þröstur er að sögn eiginkonunnar mjög morgunfúll maður og fjölskyldan reynir yfirleitt ekki að ná sambandi við hann fyrir fyrsta kaffibolla en það rjátlast fljótt af honum. „Þröstur er mikill fjölskyldumaður og líður best heima hjá sér með alla sem honum þykir vænst um í kringum sig,“ segir Helga. „Hann er mjög prívat og vill ekki opinbera sig of mikið. Hann er langrækinn og ef einhver gerir á hans hlut þá gleymist það ekki fljótt eða kannski aldrei. Hann getur farið i fýlu, en sem betur fer þá gerist það ekki oft, því þessar fýlur taka yfirleitt nokkra daga.“
Sá kostur sem flestir nefna fyrstan í fari Þrastar er að það sé hvorki til í honum snobb eða tilgerð. „Hann kemur eins fram við alla, háa sem lága, gerir engan greinarmun á stétt eða stöðu. Þar kemur kannski inn í hans hæverski bakgrunnur,“ segir einn. „Þröstur er afar pólitískur og hefur afdráttarlausar skoðanir – á oft erfitt með að sjá hlutina öðru vísi en í svart/hvítu. Hann er maður litla mannsins og þolir illa ranglæti.“
Þröstur Leó Gunnarsson
Fæddur 23. apríl 1961
Foreldrar: Gunnar Knútur Valdimarsson, bóndi og flugumferðarstjóri, látinn 2010, og Vilborg Jónsdóttir ljósmóðir
Eiginkona: Helga Sveindís Helgadóttir.
Dóttir þeirra er María f. 2005.
Börn Þrastar með fyrrverandi sambýliskonu, Írísi Guðmundsdóttur, eru Pálína Margrét f. 1993, Vilborg Kristín f. 1995, Guðmundur Leó f. 1997 og Silja Lind f. 1982

 

Nám og störf
Þröstur Leó Gunnarsson lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1985.
Leikfélag Reykjavíkur
Þröstur Leó var ráðinn til starfa hjá LR við útskrift og lék þar fjölda aðalhlutverka, meðal annars í Degi vonar, Kjöti, Þrúgum reiðinnar, Dökku fiðrildunum, Íslensku mafíunni, Hinu ljósa mani og titilhlutverkin í Platonov, Tartuffe og Hamlet.
Hann lék á síðari árum í Svari við bréfi Helgu, Góa og baunagrasinu, Eldfærunum, Fanný og Alexander, Vestrinu eina, Heima er best, Fólkinu í kjallaranum, Nei ráðherra, Kirsuberjagarðinum, Fló á skinni og Ofviðrinu.
Þjóðleikhúsið
Þröstur Leó hefur leikið í fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu, meðal annars í Ivanov, Þetta er allt að koma, Ástin er diskó, Koddamanninum, Bakkynjum, Edith Piaf, Í hvítu myrkri, Kennarar óskast, Fiðlaranum á þakinu, Grandavegi 7, Solveigu, Brúðuheimilinu, Önnu Kareninu, Viktoríu og Georg, Allir á svið og Dýrunum í Hálsaskógi.

Kvikmyndir
Þröstur hefur leikið í fjölmörgun kvikmyndum, meðal annars Jón Leifs í Tárum úr steini og föður Nóa í Nóa albínóa. Hann lék meðal annars í Eins og skepnan deyr, Kaldri slóð, Brúðgumanum, Sveitabrúðkaupi, Reykjavík-Rotterdam, 101 Reykjavík, Hafinu, Djúpinu og Harry og Heimi.

Verðlaun og viðurkenningar
Þröstur Leó hlaut Grímuverðlaunin fyrir hlutverk sín í Killer Joe, Ökutímum og Koddamanninum. Hann var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir leik sinn í Allir á svið og Þetta er allt að koma.
Hann fékk Edduverðlaunin fyrir Nóa albínóa og Brúðgumann.
Hann hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2009.

The post Ósnobbaður og morgunfúll sveitastrákur appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652