Ég er mikill áhugamaður um íslenska dagskrárgerð. Miklu meiri en um íslenska kvikmyndagerð. Sjónvarp er minn miðill. Það má því segja að ég hafi beðið með þónokkurri eftirvæntingu eftir fyrsta þættinum af spennuþáttunum Ófærð sem byrjuðu á RÚV um jólahelgina.
Íslenskir spennuþættir hafa farið ört batnandi á undanförnum árum, en alltaf er eitthvað sem vantar upp á. Eitthvað smá lummó sem við náum ekki að hrista af okkur í þessari framleiðslu. Þetta er samt allt að koma. Ófærð hefur verið kynnt í kaf undanfarnar vikur og RÚV hefur í rauninni gert allt til þess að maður nenni ekki að horfa á þetta. Þættirnir auglýstir í hverjum einasta auglýsingatíma og allir nánast komnir með ógeð á þessu þegar þetta byrjar.
Ég var með smá varnarmúr eins og venjulega og ætlaði ekki að láta það koma mér á óvart ef eitthvað í þáttunum mundi pirra mig, en það gerðist ekki. Þátturinn gekk mjög smurt og hélt góðri spennu allan tímann. Maður vill strax sjá næsta þátt. Enginn leikari var glataður. Lúkkið á þættinum var gott og öll vinnsla. Meira að segja hljóðið var gott, og maður skildi allt talað mál. Ég leyfi mér að fullyrða að það hefur aldrei áður gerst í íslenskri sjónvarpsþáttagerð. Eiginlega var þetta bara vel yfir væntingum og ég hlakka til að fylgjast með þessu. Þetta er hægt.
The post Ágætis byrjun hjá Balta og félögum appeared first on Fréttatíminn.