Ástralska hljómsveitin Tame Impala á bestu plötu ársins 2015. Platan, Currents, bar af í vali sérfræðinga Fréttatímans.
Currents er þriðja plata Ástralanna í Tame Impala og hefur hún hlotið lof tónlistarunnenda um allan heim. Tónlist sveitarinnar er fjölbreytt blanda af sýrupoppi og -rokki, raftónlist og ýmsu fleiru og stendur vel undir titlinum plata ársins. Í öðru sæti er Íslandsvinurinn Sufjan Stevens sem gaf út sína sjöundu breiðskífu í ár. Í því þriðja er rapparinn Kendrick Lamar með plötuna To Pimp a Butterfly. Plata Kendricks er besta plata ársins samkvæmt samantekt Albumoftheyear.org, en á síðunni eru teknir saman allir árslistar stóru fjölmiðlanna úti í heimi.
Meðal þeirra sem nefndir voru í vali sérfræðinga Fréttatímans en komust ekki á topp tíu voru plötur Drake, Gaz Coombes, Justin Bieber, Bob Dylan og Asap Rocky. Alls voru 66 plötur nefndar að þessu sinni.
1. Tame Impala – Currents 48 stig
2. Sufjan Stevens – Carrie & Lowell 32 stig
3. Kendrick Lamar – To Pimp a Butterfly 30 stig
4.-5. John Grant – Grey Tickles, Black Pressure 17 stig
4.-5. Grimes – Art Angels 17 stig
6.-7. Father John Misty – I Love You, Honeybear 16 stig
6.-7. Julia Holter – Have You in My Wilderness 16 stig
8. Beach House – Depression Cherry 14 stig
9. Jamie xx – In Colour 9 stig
10.-12. Courtney Barnett – Sometimes I Sit and Think, and Sometimes I Just Sit 7 stig
10.-12. Róisín Murphy – Hairless Toys 7 stig
10.-12. Wilco 4 Star Wars 7 stig
Um kosninguna:
25 einstaklingar sendu inn topp 5 lista. Efsta sæti gaf fimm stig, annað sæti fjögur stig og svo koll af kolli. Þessir tóku þátt: Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Ásgeir Eyþórsson, Benedikt Reynisson, Björn Teitsson (Fréttablaðið), Dana Rún Hákonardóttir, Doddi litli (Rás 2), Dr. Gunni, Egill Harðar (Rjóminn.is), Frosti Logason (X-ið 977), Grímur Atlason (Iceland Airwaves), Hannes Friðbjarnarson (Fréttatíminn), Helga Þórey Jónsdóttir, Henny María Frímannsdóttir (Iceland Airwaves), Höskuldur Daði Magnússon (Fréttatíminn), Jóhann Ágúst Jóhannsson, Kjartan Guðmundsson (Rás 1), Matthías Már Magnússon (Rás 2), Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2), Óli Dóri (Straumur), Ósk Gunnarsdóttir (FM957), Steinar Fjeldsted (Albúmm.is), Trausti Júlíusson, Úlfhildur Eysteinsdóttir (RÚV), Þór Tjörvi Þórsson.
The post Plata ársins kom frá Ástralíu appeared first on Fréttatíminn.