Mið-Ísland heilsar árinu 2016 með glænýrri uppistandssýningu í Þjóðleikhúskjallaranum. Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð mæta aftur til leiks með splunkunýtt og brakandi ferskt uppistand. Sýningar hópsins í Þjóðleikhúsinu eru vinsælustu uppistandssýningar Íslands frá upphafi en seinustu 3 ár hafa meira en 180 sýningar farið fram fyrir fullu húsi og hafa yfir 35.000 áhorfendur mætt og hlegið sig máttlausa.
Jóhann Alfreð, meðlimur Mið-Íslands, segir það með ráðum gert að hefja sýningar í janúar. „Við lítum svo á að á þessum tíma þurfi landinn á smá gríni og sáluhjálp að halda einna helst,“ segir hann. „Í janúar eru hátíðarhöld yfirstaðin og ekkert stendur eftir nema kreditkortareikningurinn og myrkrið. Við búum að því að vera búnir að setja okkur í ákveðnar stellingar í góðan tíma svo þunglyndið nær ekki til okkar,“ segir Jóhann. „Búnir að prufukeyra prógramið, en auðvitað þjáumst við eins og aðrir á þessum árstíma.“
Ari Eldjárn hefur verið einna mest áberandi í uppistandslífi Íslendinga undanfarin ár og hann er einn vinsælasti uppistandari landsins. „Ari er svona okkar Diana Ross á meðan við erum hinar í Supremes,“ segir Jóhann. „Mið-Ísland er nett eins og hljómsveit. Bergur Ebbi setti saman þennan hóp þegar Sprengihöllin hætti og ég held að hann hafi viljað vera áfram í hljómsveit án þess þó að þurfa að spila á hljóðfæri.“
Sýningin „Lengi Lifi Mið-Ísland“ sló eftirminnilega í gegn síðasta vetur, var sýnd yfir 60 sinnum og var lokasýningin kvikmynduð og verður hún sýnd á RÚV um áramótin. Bergur Ebbi Benediktsson mun koma fram með hópnum fjórar helgar í vetur en hann er staddur í námi erlendis og þegar hans nýtur ekki við munu þau Anna Svava Knútsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson skipta með sér að leysa hann af. Sýningin er um tvær klukkustundir með hléi og stíga fjórir uppistandarar á svið, auk kynnis.
The post Mið-Ísland byrjar árið með látum appeared first on Fréttatíminn.