Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Uppgötvaði götuljósmyndara frá síðustu öld

$
0
0

Áhugamál eru misjöfn eins og þau eru mörg og eflaust má setja spurningamerki við hvort að flokka megi uppboð sem áhugamál, en í Bandaríkjunum má finna fjölda fólks sem mætir á uppboð í leit að földnum fjarsjóði. John Maloof er einn þeirra, en á uppboði í heimabæ sínum eignaðist hann fullan kassa af negatífum fyrir 380 dollara, eða sem nemur 50.000 íslenskum krónum.

1954, New York, NY

New York, 1954.

1960s. Chicago, IL

Chicago, 7. áratugurinn.

Vefsíðan Upshout greinir frá því að þegar John hófst handa við að framkalla myndirnar komst hann að því að ekki var um „venjulegar“ svarthvítar myndir að ræða. Hann hafði líklega uppgötvað einn merkasta götuljósmyndara 20. aldarinnar, en myndirnar fanga einstaka stemningu og líf fólks á götum New York, Chicago og Flórída. John lagði sig allan fram til að hafa uppi á ljósmyndaranum, sem reyndist svo vera barnfóstra sem hélt sig mest út af fyrir sig. Vivian Maier faldi sig á bakvið myndavélina í öll þessi ár en náði með einstökum hætti að kafa djúpt ofan í myndefnið. Verk hennar urðu þó ekki þekkt fyrr en John eignaðist negatífurnar. Honum tókst ekki að hafa uppi á henni eins og hann ætlaði sér, en Vivian lést árið 2009, 83 ára að aldri.

Undated

Undated, New York, NY

New York.

vivian_maier_0091

Ljósmyndir Vivian hafa nú náð athygli heimsbyggðarinnar og hafa verið birtar á sýningum í London, New York, Los Angeles, Osló og Hamburg. John hefur einnig gert heimildamynd um þessa uppgötvun sína, og hlaut myndin mikið lof á kvikmyndahátíðum í Berlín og Toronto.

Hér má sjá brot úr myndinni:

The post Uppgötvaði götuljósmyndara frá síðustu öld appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652