Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sá í sviphendingu að allt lífið var brenglað

$
0
0

Suður-ameríska seyðið ayahuasca er í nokkurri tísku meðal fólks í sjálfshjálparsamtökum og hugleiðslu. Seyðið er soðið upp úr trjáberki og laufum  Amazon-skóganna.  Áhrifin af seyðinu eru andlegt ferðalag sem getur verið bæði strangt og erfitt en sem margir fullyrða að sé líka frelsandi.

„Það gerðist lítið í fyrsta sinn en í annað skiptið rann allt lífshlaup mitt framhjá mér, alveg frá því ég var sex ára og fram á daginn í dag,“ lýsir maður á miðjum aldri áhrifunum af suður-ameríska seyðinu ayahuasca sem er komið í nokkra tísku á Íslandi, einkum meðal fólks sem er sjálfshjálparhópum, hugrækt og hugleiðslu. „Ég sá hvað allt mitt tilfinningalíf og viðhorf höfðu breyst vegna ofsalegrar höfnunar sem ég varð fyrir um sex ára aldurinn, tilfinningalegrar bjögunar og kynferðislegrar misnotkunar innan fjölskyldunnar,“ heldur maðurinn áfram. „Það varð allt í einu kristalskýrt fyrir mér hvernig þetta hefur litað líf mitt eftir þetta. Ég er sex barna faðir, á fjórar barnsmæður og mörg mislukkuð sambönd að baki. Ég hef alla tíð frá bernsku sótt í fíknir, flótta og stanslausa útrás til að kæfa kvíðann sem hafði læst sig um mig þegar ég var barn. Það varð ljóslifandi fyrir mér að ég hef átt hunderfitt lífshlaup vegna þess að mér tókst aldrei að vinna úr þessum áföllum.“

Seiðmaður stjórnaði athöfn á Íslandi

Ástæða þess að viðmælandi okkar tók inn þetta kröftuga seyði var að hann greindist með krabbamein í ristli og vildi leita allra leiða til að losna við hefðbundna lyfjameðferð. Þegar hann frétti af því að perúskur seiðmaður væri á leið til landsins til að stjórna ayahuasca-athöfn sló hann til og fór með um fimmtán manna hópi í vikudvöl upp í sveit. Þar tók hann seyðið í fjögur skipti undir leiðsögn og tónlistarflutningi meistarans. „Ég vildi fá að vita hvers vegna ég væri með krabbamein og hvað ég ætti að gera í því,“ segir hann. „Þegar ég kom úr ferðalaginu var ég harðákveðinn að láta skera það burt og fara í hefðbundna lyfjameðferð. Það var eitt sem kom út úr þessu. Annað var algjörlega nýr skilningur á hver ég er og hvað hefir stjórnað samskiptum mínum við annað fólk hingað til. Ég hef klippt á samskipti við margt fólk eftir þetta.“

Varpar réttu ljósi á hlutina

En hvað er ayahuasca? Er það dóp? Getur fólk misnotað þetta seyði? „Ég hef ekki nokkra trú á því,“ segir viðmælandi okkar. „Ég tók þetta fyrir ári og hef enga löngun til að taka þetta aftur. Reynslan er svo sérstök og sterk og allt önnur en af vímuefnum. Ég er enn að vinna úr reynslunni mörgum mánuðum seinna. Ég er óvirkur fíkill en ayahuasca kveikti enga löngun í meira.“
Það sama segir annar viðmælandi okkar, karl á fertugsaldri. „Ég hef tekið allskonar hugvíkkandi efni, LSD, sveppi, meskalín og allskonar en ayahuasca er allt annars eðlis,“ segir yngri maðurinn. Hann tók inn seyðið til að vinna á áfallastreituröskun eftir allskyns áföll í lífinu, meðal annars langvarandi fíkniefnaneyslu. Hann hafði rekist á Vice-þátt á netinu um ayahuasca og var eitthvað að pæla í því þegar hann rakst á mann á alanon-fundi sem sagði honum að von væri á seiðmanni til landsins. Hann lét því slag standa, fór á sérstakt mataræði í tíu daga og þurfti að sannfæra þá sem stóðu fyrir athöfninni að hann ætti ekki í djúpstæðum geðrænum vanda.
Og virkaði seyðið?
„Já, ég er enn að vinna úr þessu. Þetta er ekki endanleg lausn. Seyðið strokaði ekki út allan minn vanda. En ég held að þetta hjálpi mér til að sjá hlutina í réttu ljósi og bregðast rétt við. Þetta var stór og mikil reynsla sem hefur og mun marka viðhorf mín,“ segir yngri maðurinn.
Ayahuasca er ólöglegt á Íslandi og á flestum Vesturlöndum. Það er ástæða þess að viðmælendur okkar vilja ekki koma fram undir nafni.

Ayahuasca-seyðið er bruggað úr trjáberki og laufum úr skógum Amazon.
Ayahuasca-seyðið er bruggað úr trjáberki og laufum úr skógum Amazon.

 

The post Sá í sviphendingu að allt lífið var brenglað appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652