Gunnar Jónsson hefur verið ráðinn í Þjóðleikhúsið og mun fara með hlutverk Hreggviðs í Djöflaeyjunni sem sett verður upp í vor. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann stígur á svið í Þjóðleikhúsinu.
„Þetta verður þriðji söngleikurinn minn, sá fyrsti var í Leikfélagi Hafnarfjarðar árið 1985. Ég hef nú ekki praktíserað söng en ég get alveg sungið með og tekið undir,“ segir Gunnar sem oftast er kallaður Gussi. Hann hefur í gegnum tíðina farið með fjölmörg hlutverk í kvikmyndum en þess á milli unnið við smíðar og fleira.
„Leiklistin alltaf búin að vera hobbí hjá mér en ég hef aldrei skorast undan kallinu. Núna ákvað ég að verða „fúll tæm“ leikari og við skulum sjá hvort það er eitthvað sem ég fíla,“ segir Gussi. Ráðning hans í Þjóðleikhúsið kórónar frábært ár því Gussi fékk mjög góða dóma fyrir leik sinn í kvikmyndinni Fúsa sem Dagur Kári Pétursson leikstýrði. Hann hefur fengið sex verðlaun fyrir leik sinn á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. „Það var Tribeca í vor, svo var það Króatía, ein hátíð í Frakklandi, ein á Spáni, Lübeck og nú síðast í Marokkó. Þar var Coppola sjálfur í dómnefnd og hann kom til mín í salnum eftir myndina og sagði að hann vildi óska að það væru fleiri eins og ég.“
Gussa líst vel á hlutverk Hreggviðs sem Magnús Ólafsson lék eftirminnilega í kvikmynd Friðriks Þórs. „Jájá, er það minn eða þinn sjóhattur… þetta verður skemmtilegt.“
The post Gussi ráðinn í Þjóðleikhúsið appeared first on Fréttatíminn.