„Ég hef aldrei þolað að sjá blóð,“ segir smiðurinn Steingrímur Ingi Stefánsson sem gleymir seint þeirri upplifun að hafa séð félaga sinn missa putta og þurft að leita að honum í kjölfarið. „Fyrir nokkuð mörgum árum bjó ég í Danmörku og var að vinna þar sem smiður. Einn daginn vorum við tveir félagar að vinna saman í þaki niður í bæ. Við vorum bara að vinna eins og venjulega, einbeittir í okkar heimi, hann á söginni og ég í öðru, þegar ég heyri allt í einu eitthvað skrítið hljóð í söginni, svona eins og eitthvað annað en tré hafi farið þar í gegn, og stuttu síðar kemur öskrið.“
„Gæinn heldur utan um höndina á sér, það er blóð út um allt, og segist hafa tekið af sér puttana. Ég kem nær og sé að litli putti er farinn og hluti af baugfingri. Hann er auðvitað náfölur og í algjöru sjokki og endurtekur bara í sífellu; „þú verður að finna puttann, þú verður að finna puttann!““
„Ég átti rosalega erfitt með þessar aðstæður. Ég panikkeraði gjörsamlega og var alls ekki að meika allt þetta blóð, hef aldrei getað horft á blóð, en byrjaði að leita eins og vitleysingur að puttanum. Fyrst fann ég baugfingurinn en hann var svo tættur að það var ekkert hægt að nota hann en svo fann ég loks litla putta í hrúgu af sagi og setti hann í plastpoka sem ég fann í verkfæratöskunni.“
„Við drifum okkur út í bíl og ég keyrði á sjúkrahúsið á meðan gæinn hélt á puttanum sínum í plastpokanum. Ég mundi auðvitað ekkert hvað best er að gera við svona putta, vissi að það átti að halda honum köldum eða heitum en mundi ekki hvort það var. Við brunuðum upp á næsta sjúkrahús á meðan aumingja hann rumdi og stundi af sársauka. Á bráðamóttökunni kom svo í ljós að puttinn var ónýtur, svo hann vantar þessa tvo fingur í dag.“
„Þetta er það súrrealískasta sem ég hef lent í, að gramsa í sagi í algerri panikk og leita að putta. Ég hef þessa reynslu alltaf á bak við eyrað síðan, verður oft hugsað til þessa putta og er alltaf alveg sérstaklega varkár á söginni. Smiðir eru mun varkárari í dag en áður fyrr en það er samt þannig að á annan hvern eldri smið vantar allavega einn putta.“

The post Lífsreynslan: Þegar ég leitaði blóðugra putta appeared first on Fréttatíminn.