Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fréttaskýring fyrir barnið í okkur: Endalok Samfylkingarinnar

$
0

Einu sinni voru nokkrir litlir flokkar sem vildu verða stórir. En þeir gátu það ekki. Of fáum líkaði við þá. Þeir voru ekki nógu vinsælir. Þá stakk kall upp á að þeir sameinuðust. Ef við setjum alla litlu flokkanna saman í einn flokk verður til einn stór flokkur, sagði kallinn.

Ha? Heldurðu það? spurði fólkið. Já, auðvitað, sagði maðurinn. Ef 10 líkar við Jón og 10 líkar við Gunnu og 10 líkar við Bjössa og 10 líkar við Stínu þá líkar 40 við Jón, Gunnu, Bjössa og Stínu. Auðvitað, sagði fólkið, og dreif í því að stofna nýjan stóran flokk úr öllum litlu flokkunum.

Liðu svo nokkrir vetur. Þá kom í ljós að fólkinu sem líkaði vel við Gunnu líkaði ekki endilega við Bjössa eða Stínu og þeim sem líkaði vel við Jón líkaði ekki endilega við Gunnu og Bjössa. Það gat jafnvel dauðleiðst þau.

Þannig fór að engum líkaði við flokkinn sem vildi vera stór. Hann safnaði ekki vinsældum litlu flokkanna heldur óvinsældum þeirra. Þeim sem var í nöp við Gunnu líkaði heldur ekki við Jón, Bjössa og Stínu. Og þeim sem fannst Stína leiðinleg leiddist líka Stína í hópi með Bjössa, Jóni og Gunnu.

The post Fréttaskýring fyrir barnið í okkur: Endalok Samfylkingarinnar appeared first on Fréttatíminn.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652