Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ólafur Arnalds er enn að vinna úr afleiðingum eineltis

$
0
0

Tónlistarmaðurinn og Bafta-verðlaunahafinn Ólafur Arnalds lenti í einelti sem barn. Hann segir árásina við Langholtsskóla hafa vakið upp erfiðar minningar hjá sér en hann komst undan eineltinu eftir að foreldrar hans og foreldrar gerandans unnu markvisst saman að því að taka á vandanum.

„Ég tel mig ansi heppinn. Í mínu tilfelli var þetta ekki líkamlegt ofbeldi,“ segir Ólafur, en ofbeldið lýsti sér í háði og niðurlægingu sem sumir gætu kallað stríðni. Hann lýsir mjög þekktu mynstri í eineltismálum þegar hann segir að hann hafi að auki sótt nokkuð í kvalara sína.

„Maður er svo vitlaus að maður heldur að þetta séu vinir manns,“ útskýrir Ólafur.

Hann segist hafa verið tárum næst þegar hann horfði á myndbandið af árásinni gegn stúlkunni við Langholtsskóla. Hann er þakklátur föður fórnarlambsins fyrir að hafa gefið leyfi fyrir birtingu myndbandsins; það telji hann mikilvægt ætli fólk sér að skilja grimmilegt ofbeldið sem fólgið er í eineltinu.

Sjá fyrstu frétt okkar um eineltið hér

„Og þetta er eins með orðin, þau særa ekki minna en líkamlega ofbeldið,“ segir Ólafur sem er sjálfur enn að vinna úr afleiðingum eineltisins sem hann varð fyrir sem barn. „Ég á til dæmis enn erfitt með nánd,“ segir Ólafur. Hann er hins vegar þakklátur foreldrum gerandans, sem tóku vel á sínum málum og eineltið hætti í kjölfarið. Þannig séu foreldrar gerandans í algjöru lykilhlutverki þegar kemur að eineltismálum.

The post Ólafur Arnalds er enn að vinna úr afleiðingum eineltis appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652